Þriggja daga opinber heimsókn Friðriks Danakonungs tíunda til Grænlands hefst í höfuðstaðnum Nuuk í dag. Hann boðaði til heimsóknarinnar í janúarlok og lýsti þá yfir stuðningi við málstað Grænlendinga. Á morgun heldur Friðrik í 150 kílómetra ferðalag til norðurs og heimsækir bæinn Maniitsoq, sem stendur á eyju skammt frá fjöllum á meginlandinu með demanta-, rúbína- og asúrsteinsnámum. Á föstudaginn sækir Friðrik konungur danska heimskautahermenn heim sem dvelja í æfingabúðum í bænum Kangerlussuaq, enn norðar á Grænlandi. Í tilkynningu frá hirðinni segir að tilgangur konungsheimsóknarinnar sé að sýna Grænlendingum stuðning vegna ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í landið. Danski forsætisráðherrann Mette Frederiksen sagðist á laugardag telja Trump enn girnast Grænland þótt hann hafi dregið í land yfirlýsingar um beitingu hervalds til yfirtökunnar. Trump staðhæfir að Grænland sé mikilvægt fyrir varnir Bandaríkjanna og ríkja Atlantshafsbandalagsins gegn ágangi Kínverja og Rússa á norðurslóðum. Stórveldin keppast þar um hernaðarlega yfirburði. Vinnuhópur skipaður embættismönnum á vegum Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands hefur undanfarið rætt öryggi Grænlands en hefur ekki birt neinar niðurstöður.