Ármann Þorvaldsson hefur ákveðið að láta af störfum sem bankastjóri Kvikubanka. Það kom hröfnunum svo sem ekkert í opna skjöldu að Ármann skyldi ákveða að snúa sér að öðru í kjölfarið á því að Páll Gunnar Pálsson og majónesfólkið í Samkeppniseftirlitinu kom í veg fyrir samruna bankans við Arion fyrr á árinu. Bankageirinn er kannski ekkert sérstaklega spennandi starfsvettvangur nú þegar Samkeppniseftirlitið hefur nánast útilokað frekari samruna og hagræðingar á sama tíma og stjórnvöld reyna eftir fremst megni að gera rekstur banka þyngri í vöfum með hækkunum skatta og gjalda. En samt sem áður þarf að ráða eftirmann Ármanns. Sumir hafa nefnt Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins og stjórnarformann Kviku, í því samhengi. Einnig hefur Ásgeir Reykfjörð verið nefndur sem arftaki Ármanns. Hrafnarnir telja þó að hluthafar bankans eigi að velta fyrir sér að ráða Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóra Vísbendingar í stöðuna. Hann hefur ítrekað bent á að það sé auðveldasti hlutur í heimi að reka banka á Íslandi og þar af leiðandi ætti hann að vera fullfær um að hámarka eign hluthafa bankans í störfum sínum. Huuginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út miðvikudaginn 17. júní.