Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sigurður sagður áhuga­samur um for­stjórastól Kviku

Read Full Article →

Sigurður Hannes­son, stjórnar­for­maður Kviku banka og fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðnaðarins, er sagður hafa áhuga á að taka við starfi for­stjóra bankans af Ár­manni Þor­valds­syni, sam­kvæmt heimildum Við­skipta­blaðsins. Sigurður þekkir starf­semi Kviku vel. Hann tók við sem fram­kvæmda­stjóri eignastýringar MP banka árið 2013 og hélt því starfi eftir að bankinn tók upp nafnið Kvika. Hann hefur setið í stjórn bankans frá árinu 2020 og verið stjórnar­for­maður allan þann tíma. Ef hann gæfi form­lega kost á sér í starfið myndi hann eðli máls sam­kvæmt ekki taka þátt í með­ferð ráðningar­málsins. Hann hefur setið í stjórn bankans frá árinu 2020 og verið stjórnar­for­maður allan þann tíma. Ef hann gæfi form­lega kost á sér í starfið myndi hann eðli máls sam­kvæmt ekki taka þátt í með­ferð ráðningar­málsins. Eins og Við­skipta­blaðið greindi frá í gær hefur Ás­geir Helgi Reyk­fjörð Gylfa­son, for­stjóri Skeljar og fyrr­verandi að­stoðar­banka­stjóri Arion banka, verið efstur á blaði stjórnar Kviku. Viðræður um ráðningu hans voru sam­kvæmt heimildum komnar langt á veg og einn viðmælandi sagði ráðninguna hafa verið svo gott sem frá­gengna áður en eitt­hvað kom upp á í ferlinu. Stjórn bankans er þó enn sögð hafa áhuga á Ás­geiri. Fleiri reyndir stjórn­endur innan og utan Kviku hafa komið til skoðunar í leitinni að eftir­manni Ár­manns. Áskrif­endur Við­skipta­blaðsins geta lesið nánar um kandída­tana, stöðuna í ráðningar­ferlinu og þau mikilvægu tíma­mót sem Kvika stendur frammi fyrir hér. Sjá einnig Hver tekur við Kviku banka?

Share this article