Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Björn segir Þor­gerði Katrínu fara með lygar

Read Full Article →

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hélt því fram á Rauða borðinu á Samstöðinni í gær að forverar sínir í starfi hafi hitt „nokkurn veginn sömu aðila í bandaríska stjórnkerfinu“ og hún hefur gert í ráðherratíð sinni í utanríkisráðuneytinu. „Davíð Oddsson náði aldrei að fá tvíhliða fundi með forsetum Bandaríkjanna á sínum tíma – fór kannski í floti með Norðurlöndunum.“ Hannes Hólmsteinn Gissurarson deildi í morgun klippu af þessum ummælum Þorgerðar Katrínar á Facebook og segir að utanríkisráðherrann fari þarna með rangt mál. „Mér er þetta óskiljanlegt. Davíð Oddsson hitti í forsætisráðherratíð sinni alla forseta Bandaríkjanna á einkafundum, en auk þess oft á leiðtogafundum Atlantshafsbandalagsins. Ég var með honum á einum slíkum fundi. Hvað er komið yfir Þorgerði Katrínu?“ skrifar Hannes. Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, tekur undir þetta í athugasemdakerfinu og skrifar: „Þetta er ótrúlegt. Hvílíkt froðusnakk og lygi.“ Hannes segir engan forsætisráðherra hafa náð jafngóðum tengslum við þá þrjá Bandaríkjaforseta, sem sátu í tíð hans og Davíð „og raunar líka við ekkju Reagans, Nancy“. „Sérstaklega var hlýtt á milli Davíðs og Bush yngri og milli hans og Clintons, og hittust þeir margoft, meðal annars þeir Bush og Davíð í Hvíta húsinu, eins og ég get borið vitni um. Við Davíð sungum þar Happy Birthday to you, Mister President, því að Bush átti afmæli þennan dag. Um kvöldið fórum við í kvöldverð með Nancy Ruwe, ekkju Nicks Ruwe sendiherra, en hún var áhrifakona í Lýðveldisflokknum, Repúblikönum, þekkti þar alla,“ skrifar Hannes. Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, fundaði með George W. Bush Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu 6. júlí 2004. © Einar Falur (Einar Falur) Nokkur umræða hefur verið um samskipti íslenskrar stjórnsýslu við Bandaríkin eftir að Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti áhyggjum af samskiptum þjóðanna í óundirbúnum fyrirspurnartíma í þinginu á mánudaginn. „Við virðumst bara dottin út úr öllu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fær bara fundi með einhverjum undirmönnum,“ sagði Diljá Mist í samtali við Vísi sama dag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði Donald Trump Bandaríkjaforseta ekki hafa orðið við beiðni sinni um fund en bætti við að frá því að kjörtímabil Trumps hófst hafi samskipti stjórnsýslunnar við Bandaríkin aukist. Hún sagði raunar að „samtal við Bandaríkin á Íslandi [hafi] aldrei verið betra“.

Share this article