Innlent | Morgunblaðið | 4.7.2026 | 11:00 Senda afmæliskveðju vestur um haf í dag Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Bandaríkin fagna 250 ára afmæli í dag, en af því tilefni munu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra senda bandarískum stjórnvöldum og bandarískri þjóð afmæliskveðju í dag. Þorgerður Katrín undirstrikar í samtali við Morgunblaðið gömul og gróin tengsl ríkjanna, sem áfram verði rækt af alúð. Er þau ekki gagnkvæm? Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna sendi mjög innilega kveðju til okkar á 17. júní. „Jú, það voru hlýjar kveðjur og til marks um vináttuþelið milli þjóðanna. Við Kristrún sendum þeim því kveðju á afmælisdaginn. Samskipti Íslands og Bandaríkjanna eru náin og þau eru traust og ánægjulegt að fá þessa kveðju frá Rubio á þjóðhátíðardaginn okkar.“ Hún minnir á að tengslin séu meiri en á sviði varnar- og öryggismála, menningar- og viðskiptatengsl séu mikil og fjölmargir Íslendingar hafi sótt nám vestra, sem Þorgerður telur að skipti ekki minna máli í samskiptum landanna til skemmri og lengri tíma. „Bandaríkin hafa verið eitt nánasta bandalagsríki okkar frá seinni heimsstyrjöld og við erum þeim ávallt þakklát fyrir að vera fyrsta ríkið til að viðurkenna stofnun lýðveldisins Íslands árið 1944. Því vinarbragði gleymum við ekki.“ Utanríkisráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni á að ríkisstjórnin hafi ekki lagt næga rækt við samskiptin vestur. „Við höfum sinnt þeim og við höfum átt góða fundi. Bæði vestanhafs en ekki síður í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins (NATO) og bara síðast í Helsingborg á fyrsta fundi Norðurslóðaráðsins eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Það var mjög góður fundur þessara sjö ríkja og ekki verra hafa Grænland og Færeyjar með. Marco Rubio fannst það líka gott að vera með okkur, öllum þessum ríkjum sem hafa hagsmuna að gæta á norðurslóðum. Við höldum áfram auðvitað að rækta þetta nána samstarf. Ég hef margítrekað það að þrátt fyrir að sumir haldi að það sé snúið út af varnar- og öryggismálum, þá er samstarf okkar gott og heilt. Það er frekar að það hafi styrkst, og við eigum í meiri tvíhliða samskiptum. Þar hefur engan skugga borið á.“ Er ekki erfiður leiðtogafundur NATO fram undan í Tyrklandi? „Ég ætla að leyfa mér að vera hóflega bjartsýn. Öll aðildarríkin – vestanhafs sem austan – leggja sig fram um að efla samstöðuna og að við séum sterkari saman. Við ætlum ekki að fara að skemmta skrattanum og þeir eru nú ýmsir!“ En nú er það 250 ára afmælið? „Já, ég ítreka mínar innilegustu hamingjuóskir til afmælisbarnsins.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íslensk list skiptir mig máli Hafnar því að bærinn sé undir yfirráðum Rússa Mark Sveindísar: „Hún er mætt aftur“ Senda afmæliskveðju vestur um haf í dag „Lífið með Dadda er svo sannarlega yndislegt!“ Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Fékkstu útborgað í vikunni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Swift og Kelce gengu í það heilaga Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Finnland hefur ekki forspárgildi Allt að 17 stiga hiti Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Hvað kostar að leigja sundskýlu? Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Íslensk list skiptir mig máli Hafnar því að bærinn sé undir yfirráðum Rússa Mark Sveindísar: „Hún er mætt aftur“ Senda afmæliskveðju vestur um haf í dag „Lífið með Dadda er svo sannarlega yndislegt!“ Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Fékkstu útborgað í vikunni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Erfitt fyrst að meta áhrifin af styttingu Ellefta langreyðurin veidd Swift og Kelce gengu í það heilaga Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Finnland hefur ekki forspárgildi Allt að 17 stiga hiti Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Hvað kostar að leigja sundskýlu? Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita