Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Sjóherinn gerði 6 tonn af kókaíni upptæk

  • What: El Salvador's navy seized 6 tons of cocaine from two ships
  • Impact: Authorities intercepted drug smuggling operation in the Pacific Ocean
Read Full Article →

Forseti El Salvador Nayib Bukele.EPA / Javier Aparicio Sjóherinn í El Salvador gerði rúmlega sex tonn af kókaíni upptæk sem verið var að smygla í tveimur skipum á Kyrrahafi í fyrradag. Heildarverðmæti fíkniefnanna er talið vera um 167 milljónir dollara, eða um 20 milljarðar íslenskra króna. Sex voru handteknir í aðgerðum sjóhersins. Forseti El Salvador, Nayib Bukele, sagði í færslu á X í gær að yfirvöld ætluðu að halda áfram að berjast gegn fíkniefnasmygli á svæðum þar sem smyglið hefur fram til þessa farið fram óáreitt. Yfirvöld í El Salvador hafa gert yfir 13 tonn af kókaíni upptæk það sem af er þessu ári. Verðmæti þess er metið á 322 milljónir dollara.

Share this article