Sjávarsýn, fjárfestingarfélag Bjarna Ármannssonar, hagnaðist um 1,3 milljarða króna í fyrra, samanborið við 2 milljarða hagnað árið 2024. Hrein ávöxtun verðbréfa var jákvæð um 660 milljónir í fyrra en var jákvæð um 1,5 milljarða árið áður. Sjávarsýn er stærsti hluthafi Skaga með 10% hlut. Þá á félagið m.a. allt hlutafé Gasfélagsins, 91% hlut í Köfunarþjónustunni, 51% hlut í Fálkanum-Ísmar, 55% hlut í Kemi og 31% hlut í S4S ehf., sem rekur m.a. verslanir Steinar Waage og Ellingsen. Lykiltölur / Sjávarsýn 2025 2024 Hrein ávöxtun verðbréfa 660 1.562 Eigið fé 14.902 13.560 Eignir 14.971 14.128 Afkoma 1.342 2.029 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .