Bananalýðveldið, eignarhaldsfélag athafnamannsins Björns Braga Arnarssonar, hagnaðist um 86 milljónir króna í fyrra, samanborið við 44 milljóna króna hagnað árið 2024. Rekstrartekjur félagsins námu 16,6 milljónum króna. Mestu munaði um að hlutdeild í afkomu dóttur- og hlutdeildarfélaga námu 72 milljónum króna. Bananalýðveldið á meðal annars félagið Fullt tungl ehf. sem gefur út Kviss-spilin. Útgáfufélagið hagnaðist um 56 milljónir króna í fyrra. Björn Bragi á einnig 85% hlut í Sykursalnum í Grósku sem skilaði 14 milljóna króna hagnaði í fyrra og 36% hlut í mathöllinni Borg29 sem tapaði 2 milljónum króna í fyrra. Eignir Bananalýðveldisins voru bókfærðar á 358 milljónir króna í lok síðasta árs. Þar af var fasteign sem metin var á 100 milljónir og eignarhlutur í dóttur- og hlutdeildarfélögum námu 140 milljónum króna. Eigið fé var um 353 milljónir króna. Hlutafé Bananalýðveldisins var lækkað um 100 milljónir króna að nafnverði á síðasta ári. Bananalýðveldið og Björn Bragi komust í fréttirnar vor 2022 þegar félagið var meðal 209 þátttakenda í lokuðu útboði Bankasýslu ríkisins á hlut í Íslandsbanka. Bananalýðveldið tók þá þátt fyrir 17,6 milljónir króna. Félagið tók einnig þátt fyrir 20 milljónir króna í hlutafjárútboði Íslandsbanka í maí 2025 þar sem ríkið seldi eftirstandandi 45% hlut sinn í bankanum.