Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frá átaksvæðum til nýsköpunar

Read Full Article →

KLAK – Icelandic Startups réðu nýlega Álfrúnu Perlu Baldursdóttur í starf alþjóðafulltrúa og verkefnastjóra og mun hún hefja störf í byrjun ágúst. Álfrún kemur til félagsins með víðtæka reynslu úr alþjóðasamstarfi, verkefnastjórnun og stefnumótun. Hún er stjórnmálafræðingur að mennt og lærði átakafræði við London School of Economics og samningatækni við Harvard. Álfrún er búsett um þessar mundir í Bandaríkjunum þar sem hún starfar sem fulltrúi Íslands gagnvart NATO-herstöðinni í Norfolk í Virginíu á vegum utanríkisráðuneytisins. Hún hefur starfað í ráðuneytinu í nær tíu ár og hafa síðustu fjögur árin verið varin í Bandaríkjunum. „Það er búið að vera fróðlegt að vera í Bandaríkjunum á þessum tíma og það er líka mjög spennandi að vinna í svona herumhverfi.“ Álfrún Perla með ferðatösku á leið í Blackhawk-þyrlu í Afganistan. © Aðsend mynd (AÐSEND) Starfsmenn utanríkisráðuneytisins sem starfa erlendis vinna yfirleitt í fjögur ár og koma svo til Íslands að því tímabili loknu. Álfrún ætlaði sér að halda áfram í ráðuneytinu en hún hefur alltaf haft annan fótinn í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi. Nánar er fjallað um Álfrúnu í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article