Innlent | mbl | 21.6.2026 | 23:01 | Uppfært 23:24 Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Mennirnir hafa nú greitt sekt fyrir utanvegaaksturinn. Ljósmynd/Aðsend Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Utanvegaakstur Ökumennirnir kallaðir til yfirheyrslu „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Telur tjónið hlaupa á tugum milljóna Myndir: Töluvert tjón eftir akstur utan vega » Fleiri tengdar fréttir Frönsku ferðamönnunum tveimur sem gerðust ítrekað uppvísir að utanvegaakstri á hálendi Íslands í vikunni hefur verið gert að greiða sekt sem hleypur á hundruðum þúsunda króna fyrir athæfið. „Málið hefur verið afgreitt hvað þetta varðar, og við skulum vona að þeir geri þetta bara aldrei aftur og láti sér þetta að kenningu verða,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is. Hann staðfestir jafnframt að sektin hlaupi á hundruðum þúsunda króna, eins og áður hefur verið greint frá að sektir fyrir slíkt athæfi geti numið. Frétt af mbl.is Ökumennirnir kallaðir til yfirheyrslu Á Emstruleið, þar sem mennirnir keyrðu langar leiðir utan vegar. Ljósmynd/Aðsend Létu sér ekki segjast Fyrr í dag var greint frá því að tveir erlendir ferðamenn, hvor á sínum Land Rover-jeppa, hefðu verið staðnir að utanvegaakstri á Emstruleið, frá Einhyrningi og inn að Álftavatni af leiðsögumanninum Klemenz Geir Klemenzsyni, sem hafði þá af þeim afskipti og las að eigin sögn yfir þeim pistilinn. Frétt af mbl.is „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Mennirnir munu fyrr í vikunni hafa fest annan jeppa sinna í holu utan vegar undir Kötlu, og virt viðvaranir Margrétar Herborgar Nikulásdóttur leiðsögumanns um að utanvegaakstur væri ólöglegur á Íslandi að vettugi. Hennar upplifun af samskiptum við mennina var sú að þeim hafi verið slétt sama um það sem hún sagði. „Hann bara yppti öxlum og sagðist hafa gert mistök,“ sagði hún í samtali við mbl.is fyrr í dag, en þar sagðist hún jafnframt telja að ekki væru nægilegar afleiðingar fyrir ferðamenn sem staðnir séu að utanvegaakstri. Frétt af mbl.is „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Mennirnir munu fyrr í vikunni hafa fest annan jeppa sinna í holu utan vegar undir Kötlu. Ljósmynd/Margrét Herborg Nikulásardóttir Svöruðu kalli um yfirheyrslu í snatri Eins og áður hefur komið fram brýtur utanvegaakstur af þessu tagi gegn íslenskum náttúruverndarlögum, enda hefur hann mikil áhrif á ásýnd viðkvæmrar náttúru hálendisins. Lögregla kallaði mennina í yfirheyrslu fyrr í kvöld, en þeir munu hafa hlýtt kallinu í snatri og greitt sektina greiðlega. „Þeir hlýddu fyrirmælum um að koma á lögreglustöð, og þar lauk máli með greiðslu sektar,“ segir Þorsteinn. Tengdar fréttir Utanvegaakstur Ökumennirnir kallaðir til yfirheyrslu „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Telur tjónið hlaupa á tugum milljóna Myndir: Töluvert tjón eftir akstur utan vega » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Úrúgvæ - Grænhöfðaeyjar, staðan er 2:2 „Tígrisdýrið“ verður forseti Kólumbíu Leyndardómur bjarnarhrammsins í kirkjunni Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Vill láta afla mun ítarlegri tölfræði Umræðan Opinber störf Handskrifaðir draumar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Á þjóðargrafreitur ekki hljómgrunn? Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Banaslys austan við Vík í gær Víðförull svikahrappur eftirlýstur Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Banaslys austan við Vík í gær Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Hrossadráp til rannsóknar Fráleitt að strætó verði „hjáleið“ Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss Bíll við bíl: „Það er bara gaman að þessu“ Alvarlegt umferðarslys við Vík Fann ástina á Suðurpólnum Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Þyrlan kölluð út vegna slyssins við Vík Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Nýjast á mbl.is » Úrúgvæ - Grænhöfðaeyjar, staðan er 2:2 „Tígrisdýrið“ verður forseti Kólumbíu Leyndardómur bjarnarhrammsins í kirkjunni Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Vill láta afla mun ítarlegri tölfræði Umræðan Opinber störf Handskrifaðir draumar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn JD Vance kominn til Sviss: Viðræður hefjast í dag Banaslys austan við Vík í gær Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Banaslys austan við Vík í gær Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Hrossadráp til rannsóknar Fráleitt að strætó verði „hjáleið“ Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss Bíll við bíl: „Það er bara gaman að þessu“ Alvarlegt umferðarslys við Vík Fann ástina á Suðurpólnum Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Þyrlan kölluð út vegna slyssins við Vík Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“