Innlent | mbl | 23.6.2026 | 15:50 Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Jóhann Páll segir að taka þurfi umhverfisspjöll af þessu tagi fastari tökum og íhugar að endurskoða sektarfjárhæðir við slíkum lögbrotum. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Ljósmynd/Klemenz Geir Klemenzson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Utanvegaakstur Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Hissa að mönnum detti þetta í hug Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Brot ferðamannanna alvarleg Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn » Fleiri tengdar fréttir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að sektarfjárhæðir sem beitt er í dag þegar menn gerast sekir um utanvegaakstur séu of lágar og endurspegli ekki nægilega alvarleika brotanna. Hann er þeirrar skoðunar að vakta þurfi hið einstaka hálendi Íslands betur, en segir að það eigi eftir að koma í ljós hvort því verði best breytt með nýju verklagi í kjölfar samtals við lögregluyfirvöld eða með lagabreytingu. „Það er algjörlega og fullkomlega óásættanlegt að það sé gengið fram með þessum hætti gegn náttúrunni okkar,“ segir hann í samtali við mbl.is. „Þetta eru skemmdarverk og umhverfisspjöll sem þarf að taka fastari tökum, og við ætlum að fylgja því kirfilega eftir.“ Greint var frá utanvegaakstri tveggja franskra ferðamanna um hálendi Íslands á vettvangi mbl.is um helgina og sögðust viðmælendur vonast til þess að atvikin yrðu til þess að stjórnvöld tækju slíkt athæfi fastari tökum þar sem allt of auðvelt væri fyrir lögbrjóta að komast undan réttlætinu. Frétt af mbl.is Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Frétt af mbl.is Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Skapa meiri varnaðaráhrif Jóhann segir málið eitt af þeim málum sem minni á mikilvægi þess að vakta hálendið betur, enda sé það einstakt í heiminum, og að sama skapi á mikilvægi landvörslu og hálendiseftirlits. „Ég er þeirrar skoðunar að sektarfjárhæðir í svona tilvikum verði að endurspegla betur alvarleika brotanna heldur en nú er, og það er umtalsvert svigrúm í gildandi lögum til þess að beita sektum af fullum þunga,“ segir hann. Hann segist ekki útiloka að ástæða sé til þess að gera breytingar á náttúruverndarlögum til þess að herða enn frekar á sektarákvæðum, en segir að það sem ríði á að gera núna strax sé að taka upp samtal við lögreglu og ákæruvaldið. „Við þurfum að koma því á hreint hvað teljast alvarleg umhverfisspjöll í skilningi náttúruverndarlaga og hvort það sé ekki ástæða til þess að herða enn frekar viðurlög og skapa með því meiri varnaðaráhrif,“ segir hann. „Því það er algjörlega óboðlegt að svona sé gengið fram.“ Frétt af mbl.is „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Frétt af mbl.is Hissa að mönnum detti þetta í hug Skýra verklag með samtali lögreglu og náttúruverndaryfirvalda Hann segist vita til þess að Náttúruverndarstofnun og lögreglan á Suðurlandi hafi átt í þéttu samstarfi í þessu máli sem og öðrum sem tengjast utanvegaakstri, en þó sé tilefni til þess að taka upp formlegt samtal í þessum málum. „Það sem er næst á dagskrá er að taka upp með formlegum hætti samtal milli náttúruverndaryfirvalda, það er að segja míns ráðuneytis og Náttúruverndarstofnunar, og lögreglu og eftir atvikum líka við ríkissaksóknara sem setur almenn tilmæli um sektarfjárhæðir,“ segir hann. Fara þurfi yfir og skýra verklag þegar kemur að beitingu þeirra viðurlaga sem þegar er mælt fyrir um í náttúruverndarlögum og impra á því til þess að viðurlögin hafi raunveruleg varnaðaráhrif. Frétt af mbl.is „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Fullt tilefni til að skoða hækkun hámarkssektar Umhverfisverndarsinnar sem verið hafa til viðtals hafa bent á að þrátt fyrir að sektarheimildin sé allt að einni milljón króna sé ekki vitað til þess að hámarkssekt hafi nokkurn tíma verið beitt. Jóhann Páll telur fullt tilefni til að rýna hvort það sé ástæða til þess að hækka hámarksupphæðina enn frekar og útilokar hann ekki að lagðar verði til breytingar þess efnis á næsta löggjafarþingi. „En engu að síður, ef maður skoðar lagatexta náttúruverndarlaga , þá er þar talað um að lágmarki 350.000 krónur fyrir alvarleg spjöll, og heimildirnar til að beita sektum eru nokkuð rúmar, og þá verður einfaldlega að tryggja að fylgja því eftir í framkvæmd og tryggja að fjárhæðirnar séu í samræmi við alvarleika brotsins hverju sinni.“ Frétt af mbl.is Hissa að mönnum detti þetta í hug Frétt af mbl.is Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Fjársektir skilvirkari en að leggja hald á bílana Aðspurður um heimildir lögreglumanna til þess að leggja hald á bíla ferðamannanna segir Jóhann Páll þær heimildir liggja fyrir og það sé í höndum lögreglu hvort hún ákveði að beita þeirri heimild hverju sinni. Hann telur þó að fjársektir séu mun skilvirkari lausn en að leggja hald á bílana og að þær hafi að sama skapi meiri varnaðaráhrif „Það þarf að útkljá svoleiðis mál með dómi, þannig að það gerist ekkert einn tveir og þrír að hægt sé að gera bílana upptæka og því ekkert sérlega heppilegt þegar um er að ræða ferðamenn,“ segir hann. Frétt af mbl.is Brot ferðamannanna alvarleg Full ástæða til að hugsa með skapandi hætti Inntur viðbragða við tillögu framkvæmdastjóra Landverndar um að ferðamenn sem hyggist sækja hálendið heim muni þurfa að sitja sérstakt námskeið um það hvernig skuli nálgast náttúruna, segir hann fulla ástæðu til þess að hugsa með skapandi hætti um það hvernig hægt er að takast á við utanvegaakstur með enn meira afgerandi hætti. „En við skulum líka muna að langflestir fylgja lögum og reglum og ganga vel um landið okkar,“ segir hann. „Það er mikilvægt að hafa það í huga líka.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Utanvegaakstur Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Hissa að mönnum detti þetta í hug Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Brot ferðamannanna alvarleg Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Frakkinn eftirsótti á óskalista Chelsea Danir veita aðstoð við opnun Hormússunds Hverjir gætu tekið við af Starmer? 200 handteknir í aðdraganda leiðtogafundar Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaupmáttur aukist Norðmenn fylgjast grannt með íslenskri umræðu Dregið verulega úr banaslysum Væta víða um land fram undan Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Vatnsmengun í bensíni til skoðunar Segir heimildir Heimildarinnar rýrar Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Nýjast á mbl.is » Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Frakkinn eftirsótti á óskalista Chelsea Danir veita aðstoð við opnun Hormússunds Hverjir gætu tekið við af Starmer? 200 handteknir í aðdraganda leiðtogafundar Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaupmáttur aukist Væta víða um land fram undan Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Vatnsmengun í bensíni til skoðunar Segir heimildir Heimildarinnar rýrar Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Þetta eru bara menn sem er skítsama“