Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jafntefli hjá Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjum

Read Full Article →

Leikur Úrúgvæ og Grænhöfðaeyja endaði með jafntefli liðanna, 2-2, á leikvanginum í Miami í kvöld. Fyrri hálfleikurinn var fjörugur. Kevin Pina skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Grænhöfðaeyjar á 21. mínútu. Maxi Araujo skoraði fyrsta mark Úragvæ á 44. mínútu og Agustin Canobbio bætti svo um betur með öðru marki fyrir Úragvæ skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Helio Varela skoraði seinna mark Grænhöfðaeyja á 61. mínútu leiksins. Úrúgvæ mætir næst Spáni á laugardaginn. Grænhöfðaeyjar mæta Sádi-Arabíu sömuleiðis á laugardaginn. Spánn er efst í H-riðli eftir leiki kvöldsins með 4 stig. Bæði Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjar eru með tvö stig hvort og Sádí-Arabía rekur lestina í riðlinum með 1 stig.

Share this article