Leikur Argentínu og Grænhöfðaeyja endaði með 3-2 sigri Argentínu eftir framlengingu í æsispennandi leik. Óhætt er að segja að Davíð hafi staðið í hárinu á Golíat og gott betur en lið Grænhöfðaeyja átti stórgóðan leik. Lionel Messi skoraði fyrsta mark Argentínumanna á 29. mínútu leiksins. Deroy Duarte skoraði svo fyrsta mark Grænhöfðaeyja á 59. mínútu. Í síðari hálfleik skoraði Lisandro Martinez þegar komið var fram í uppbótatíma á 92. mínútu. Rétt rúmum tíu mínútum síðar jafnaði Sidny Lopes Cabral fyrir Grænhöfðaeyjar. Það var allt að fara á límingunum í síðari hálfleik framlengingarinnar og þá varð Grænhöfðeyingurinn Didney Borges fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Þar með stóðu Argentínumenn uppi sem sigurvegarar þegar flautað var til leiksloka. Argentínumenn fara áfram í 16-liða úrslit og spila næst á móti Egyptum. Landslið Grænhöfðaeyja heldur nú heim á leið, þó sem sigurvegarar á sinn hátt enda verður leikgleði og árangur Grænhöfðaeyinga eflaust lengi í minnum hafður.