Danska flugfélagið SAS hótaði dönskum stjórnvöldum að flytja hluta af millilandaflugi sínu frá Kaupmannahöfn yfir til Stokkhólms, vegna langra biðraða sem myndast hafa í vegabréfaeftirliti á Kaupmannahafnarvelli. Frá þessu greinir Børsen . Samkvæmt miðlinum setti flugfélagið stjórnvöldum úrslitakosti í mars, og krafðist skriflegrar tryggingar þess efnis að mönnun í vegabréfaeftirliti yrði stórlega bætt. Að öðrum kosti yrði tafarlaust hafinn undirbúningur að flutningi véla og starfsemi til Arlanda-flugvallar í Stokkhólmi. SAS staðfestir nú í fyrsta sinn að til skoðunar hafi komið að færa hluta starfseminnar frá Kaupmannahöfn, ef ekki næðist að finna lausn á vandanum. Málið þykir þar að auki sérstakt fyrir þær sakir, að flugfélagið er að hluta til í eigu danska ríkisins. Hótanir þessar virðast þó hafa skilað árangri, en dönsk stjórnvöld gripu til þess að fjölga lögreglumönnum í vegabréfaeftirliti. Þeir veittu sömuleiðis tryggingar fyrir því að úrbætur yrðu tryggðar, áður en stjórn SAS fundaði formlega um málið. Að sögn SAS eru tafir í vegabréfaeftirlitinu enn viðvarandi vandamál sem geti haft veruleg áhrif á rekstur flugfélagsins, en Kaupmannahöfn er ein mikilvægasta tengimiðstöð félagsins fyrir flug til Norður-Ameríku og Asíu. Borsen birti meðfylgjandi bréf frá SAS til dómsmálaráðuneytisins.