Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Air Canada sækir forstjóra SAS

Read Full Article →

Norræna flugfélagið SAS tilkynnti í dag að hollenski forstjóri félagsins, Anko van der Werff, hafi upplýst stjórn þess um að hann hyggist láta af störfum í ársbyrjun 2027 til að taka við starfi forstjóra Air Canada. SAS hefur hafið leit af nýjum forstjóra. Van der Werff tók við forstjórastöðunni hjá SAS árið 2021 og hefur leitt flugfélagið í gegnum mikla endurskipulagningu á rekstri og fjárhag þess, þar á meðal greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. SAS segir að markviss áhersla á rekstrarárangur og áreiðanleika hafi orðið til þess að flugfélagið sé nú meðal stundvísustu flugfélögum heims. Bent er á að flugfélagið hafi nýlega lagt inn pöntun á 40 Airbus breiðþotum, sem sé stærsta fjárfesting í flotanum í sögu SAS. Air Canda tilkynnti um að Van der Werff muni taka við sem forstjóri félagsins í lok janúar. Hann tekur við starfinu af Michael Rousseau, sem hefur ákveðið að setjast í helgan stein eftir 19 ára starf hjá Air Canada, en þar af gegndi hann stöðu forstjóra frá árinu 2007. Rousseau lætur formlega af störfum þann 31. ágúst næstkomandi. Michael Rousseau hefur starfað sem forstjóri Air Canada frá árinu 2021. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article