Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla lýsir eftir Ernu Athichu Jónsdóttur Alexander Kristjánsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ernu Athichu Jónsdóttur, 17 ára. Í tilkynningu frá lögreglu segir að Erna, sem er með brún augu og sítt hár með ljósum strípum, sé grannvaxin og 170 cm á hæð. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ernu, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112. Aðsend Fyrir 3 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð 92% Ísraelsmanna telja að Íran hafi sigrað 92 prósent aðspurðra í nýrri könnun í Ísrael segja að Íran hafi borið sigur úr býtum í stríðinu þar. Meirihluti Bandaríkjamanna telur að stríðið hafi haft neikvæð áhrif. Fyrir 18 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Drop P frá Gróu er plata vikunnar Það eru að verða tíu ár síðan hljómsveitin Gróa pönkaði sig í gang og í fyrra sendi hún frá sér sína þriðju breiðskífu sem heitir Drop P. Fyrir 40 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddviti sjálfkjörins lista ráðin sveitarstjóri Oddviti framboðs sem var sjálfkjörið til sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps hefur verið ráðin sveitarstjóri. Hún segist frekar líta á starfið sem faglegt en pólitískt. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Fyrrverandi ráðherra í 24 ára fangelsi fyrir spillingu Fyrrverandi samgönguráðherra Spánar hefur verið dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir spillingu. Aðstoðarmaður hans fékk 19 ár. Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ríkisstarfsmenn sviptir réttindum með lagabreytingu Lífeyrir opinberra starfsmanna var skertur verulega þegar lífeyriskerfi þeirra var gert sambærilegt því sem þekkist á almennum markaði. Fyrrverandi ráðherra segir ríkið muna fá hundrað milljarða króna vanda í fangið þegar niðurstaða fáist í málinu. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Messi og Argentína Argentína og Austurríki mætast klukkan 17 í fyrsta leik dagsins. Framundan eru svo leikir Frakklands og Írak, Noregs og Senegal og Jórdaníu og Alsír. Lionel Messi getur orðið einn markahæstur í sögu HM skori hann í dag. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Veður Börn fundust látin í bifreið í næstum fjörtíu stiga hita Björn Malmquist Tvö börn, tveggja og fjögurra ára gömul, fundust látin í bifreið foreldra sinna í bænum Carpentras í suðurhluta Frakklands í dag. AFP fréttastofan hefur eftir rannsóknardómara í bænum að börnin hafi að líkindum dáið vegna ofhitnunar, en hitastigið í Carpentras hefur verið nálægt fjörtíu gráðum í dag, rétt eins og víða annars staðar í Frakklandi. Ekki er ljóst hvers vegna börnin voru í bifreiðinni. Rauðar viðvaranir eru í gildi víða um Frakkland og í nágrannaríkjunum vegna hitabylgjunnar sem nú gengur yfir Evrópu. Víða er búist við um og yfir fjörtíu stiga hita í dag og næstu daga. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Schlotterbeck úr leik hjá Þjóðverjum Einar Örn Jónsson Þýski varnarmaðurinn Nico Schlotterbeck er með rifið liðband í ökkla og er úr leik á HM. Hann fór meiddur af velli í sigri liðsins á Fílabeinsströndinni og er á heimleið. Meiðsli Schlotterbeck eru slæm fyrir þýska liðið því hann er eini örvfætti miðvörður liðsins. Antonio Rüdiger kemur væntanlega í byrjunarlið Þýskalands í stað Schlotterbeck, en hann er réttfættur. „Ég þarf smá tíma til að vinna úr þessum tíðindum og ræði þau síðar,“ sagði Schlotterbeck á Instagram í dag. „Það mikilvægasta er liðið, það á skilið stuðning allra Þjóðverja. Stöndum saman og sýnum að við stöndum að baki liðinu á góðum og erfiðum augnablikum,“ bætti hann við. Schlotterbeck fær aðhlynningu í leiknum gegn Fílabeinsströndinni. EPA / EDUARDO LIMA Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ferðalangar ekki lengur sjúkratryggðir utan EES Frá áramótum verða ferðalangar ekki lengur tryggðir gagnvart kostnaði vegna veikinda og slysa sem þeir verða fyrir utan EES. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Með þrastarhreiður í beinu streymi frá pallinum Þrastafjölskylda hefur gert sig heimakæra á pallinum hjá fjölskyldu í Garðabæ. Komið hefur verið upp myndavél ofan við hreiðrið þar sem hægt er að fylgjast með fuglunum í beinu vefstreymi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tveimur kærum vegna kosninga vísað frá Brynjólfur Þór Guðmundsson Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi í maí standa. Þetta varð ljóst þegar úrskurðarnefnd kosningamála vísaði frá tveimur kærum sem bárust vegna framkvæmdar kosninganna. Efni annarrar kærunnar var að ekki hefði verið rétt staðið að talningu varamanna í sveitarstjórn. Úrskurðarnefndin vísaði því á bug. Í hinni kærunni voru gerðar athugasemdir við auglýsingu á niðurstöðum kosninganna og að atkvæði væru ekki endurtalin, og þess krafist að úrskurðað yrði um hæfi eins kjörstjórnarfulltrúa hvers maki sóttist eftir endurkjöri í sveitarstjórn. Þeirri kæru var vísað frá þar sem kærufrestur var runninn út þegar kæran barst. Umferðarskilti í Eyja- og Miklaholtshreppi. RÚV / Halla Ólafsdóttir Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Á þriðja hundrað umferðarlagabrota á Akureyri um helgina Átta líkamárásir og á þriðja hundrað umferðarlagabrota komu á borð lögreglu á Akureyri um helgina. Sá sem hraðast ók var gripinn á 137 kílómetra hraða. Viðburðir á Bíladögum gengu vonum framar að mati stjórnarmanns í Bílaklúbbi Akureyrar Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Messi getur eignast HM-metið einn í dag Argentína mætir Austurríki í fyrsta leik dagsins á HM í fótbolta. Liðin mætast klukkan fimm í dag og getur Lionel Messi slegið enn eitt metið. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps undir Höfðatorgi Þrír eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps með því að aka bifreið á mann á mikilli ferð, berja hann ítrekað með óþekktu áhaldi og stinga. Brotaþoli fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Rauð viðvörun þegar hitabylgjan fer yfir Bretlandseyjar Breska veðurstofan hefur gefið út rauða viðvörun vegna hita. Viðbúið er að hiti nái allt að 39 stigum síðar í vikunni. Hiti hefur farið yfir 40 stig víða í Evrópu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Fyrstu hvalirnir á leið í land Hvalur 9 hefur veitt tvo hvali og er á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem hafa verið veiddir við Ísland frá árinu 2023. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Náttúrufræðibraut ekki fjölmennust í fyrsta sinn í áratug Flestir sem brautskráðust úr menntaskóla í fyrra útskrifuðust af almennum eða opnum brautum. Þeim hefur farið verulega fjölgandi síðasta áratug. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Valur fékk ekki sæti í Meistaradeildinni Einar Örn Jónsson EHF hefur gefið út hvaða lið taka þátt í Meistaradeild karla í handbolta á næstu leiktíð. Valsmenn höfðu falast eftir sæti sem Íslandsmeistarar, en fjölgað verður í 24 lið í deildinni fyrir næsta vetur. 27 lið, frá þjóðum með nægileg stig á styrkleikalista EHF, vildu fá sæti í stækkaðri deild en Valur, Tatabanya frá Ungverjalandi og Elverum frá Noregi fengu ekki sæti og leika í Evrópudeildinni þess í stað. Nóg verður þó af Íslendingaliðum í deildinni á næsta vetri. Barcelona, núverandi Evrópumeistari, Magdeburg, Sporting Lissabon, Melsungen, Porto og Kristianstad eru öll með landsliðsmenn innanborðs og keppa í deild þeirra bestu næsta vetur. Valur er Íslandsmeistari en fékk ekki sæti í Meistaradeildinni Mummi Lú Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Halda Messi, Mbappe og Haaland áfram að skora? Fjórir leikir eru á dagskrá á HM karla í fótbolta í dag. Stórstjörnurnar Lionel Messi, Kylian Mbappe og Erling Braut Haaland skoruðu allir í fyrsta leik. Hvað gerist í dag? Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Filippseyjar Þrír drepnir í skotárás í menntaskóla Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Skjáskot úr myndskeiði sem tekið var utan við skólann eftir skotárásina. AP/James Daantos / James Daantos Þrír unglingar féllu og fimm særðust í skotárás í menntaskóla í borginni Tacloban í Filippseyjum í morgun. Hinir grunuðu eru 14 og 15 ára gamlir nemendur skólans sem sagðir eru hafa hafið skothríð „af handahófi“ innan veggja skólans. Yfirmaður hjá filippseysku lögreglunni tjáði fréttastofu AFP að samkvæmt fyrstu upplýsingum hafi einelti verið kveikjan að árásinni. Til rannsóknar sé hvar árásarmennirnir komust yfir skotvopn og hvernig þeir komu þeim inn í skólann. Samkvæmt frétt AFP eru skotárásir í skólum afar sjaldgæfar í Filippseyjum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Burnham staðfestir framboð – orðinn þingmaður Verkamannaflokksins Andy Burnham, nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins í Makerfield-kjördæminu, hefur staðfest framboð sitt til leiðtoga Verkamannaflokksins. Allt stefnir í að hann verði næsti forsætisráðherra Bretlands. FRÉTTAVAKT Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæg suðlæg átt með smáskúrum Hiti nær allt að 18 stigum þar sem best lætur á morgun. Það verður hæglætisveður með stöku smáskúrum víðast hvar á landinu í dag og næstu daga. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fótbolti Hverfisfélagið eins og kirkja Sverrir Geirdal, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, segir að mikið hafi verið gert til að fá fólk á völlinn sem hafi ekki brennandi áhuga á fótbolta. Félagið geti í dag gegnt því hlutverki sem kirkjan gegndi áður fyrr. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Katar 54 slasaðir og 18 saknað eftir mikla sprengingu í verksmiðju Mikil sprenging varð verksmiðju í iðnaðarborginni Ras Laffan í Katar í gær. Orkuinnviðir í borginni urðu fyrir miklum árásum Írana í mars. 22. júní 2026 kl. 6:00ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Fánastríðið í Garðabænum: „Þetta byrjaði árið 2017“ Þeir Sigurður Scholten og Ólafur Egilsson hafa háð vingjarnlegt stríð í Garðabænum þetta HM í fótbolta. Þeir flagga fyrir alla leiki með réttum fána fyrir hvern leik. Andstæðinga dagsins á HM má alltaf sjá hjá þeim. 22. júní 2026 kl. 5:30ERLENDAR FRÉ