Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lýst eftir Ernu Athicu Þorgils Jónsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ernu Athichu Jónsdóttur, 17 ára, en síðast er vitað um ferðir hennar í Keflavík í gærkvöld. Erna er klædd í svartar buxur, hvítan pels með doppum, hlébarðamynstur, og svarta/bleika Adidas skó. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ernu, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112. Mynd / Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Fyrir 5 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Líf áfram í efsta sæti Sjálfstæðisflokks á Akranesi Líf Lárusdóttir, formaður bæjarráðs á Akranesi, verður áfram í efsta sæti flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Fyrir 19 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Tvær breytingar á íslenska hópnum Búið er að tilkynna íslenska landsliðshópinn í handbolta fyrir leiki í undankeppni EM. Harpa María Friðgeirsdóttir kemur inn í hópinn. Thea Imani Sturludóttir er meidd og fer út. Fyrir 52 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Mette Frederiksen ræðir við flokksleiðtoga á morgun Mette Frederiksen hefur boðað leiðtoga þeirra stjórnmálaflokka sem hún vill starfa með til stjórnarmyndunarviðræðna á morgun. Hún fundar einnig með Venstre og Íhaldsflokknum. Fyrir 55 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Áfall yfir morgunkaffinu Daði Már Kristófersson segir að það hafi verið nokkuð áfall að lesa uppsagnarbréf tileinkað honum yfir morgunkaffinu. Það breyti þó í engu fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Fjórir íslenskir höfundar tilnefndir til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Árstíðarverur og Skólastjórinn eru á meðal þeirra 13 bóka sem tilnefndar eru til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Verðlaunin verða veitt í Helsinki í október. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Sennilegt að stýrivextir hækki frekar Nýjustu verðbólgutölur ýta undir að Seðlabankinn hækki stýrivexti frekar, segir Una Jónsdóttir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. Verðbólga er nú 5,4%. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Veiðiskipin lóna upp í ölduna og halda sjó í óveðrinu Nokkur veiðiskip lóna upp í veðrið út af Reykjanesi, hafa tekið upp veiðarfæri og bíða eftir að lægi. Stýrimaðurinn um borð í Guðmundi í Nesi segir að það væri kæruleysi að fara út á dekk. Vindmælirinn í skipinu mældi í morgun kviður upp í 35 m/s. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Evrópusambandið hjólar í klámsíður og Snapchat fyrir brot á reglum um barnavernd Klámsíður á borð við Pornhub koma sér hjá því að hindra að börn geti skoðað klámfengið efni á heimasíðum þeirra. Þetta sýna bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í dag. Rannsókn á Snapchat er einnig hafin. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Atvinnuleysi var 7,1% í febrúar Í vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands mælist árstíðarleiðrétt atvinnuleysi 7,1%, sem er aukning milli mánaða. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Viktor Bjarki um A-landsliðið: „Auðvitað er ég tilbúinn“ Viktor Bjarki Daðason, leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins FCK, varð í vetur einn yngsti markaskorarinn í sögu Meistaradeildarinnar. Hann spilar með U21 árs liðinu í landsliðsglugganum sem nú stendur yfir en segist auðvitað tilbúinn í A-landsliðið. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Æðsti yfirmaður íranska sjóhersins sagður veginn í loftárás Æðsti yfirmaður íranska sjóhersins var veginn í árás Ísraelshers í gærkvöld að sögn varnarmálaráðherra Ísraels. Hann er sagður bera alla ábyrgð á lokun Hormússunds. Rússar segja af og frá að þeir útvegi Írönum árásardróna og aðra hernaðaraðstoð. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Grindavíkurbær Með heimþrá en ekki á heimleið Margir ósáttir við tjónamat í Grindavík Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Samþykkja breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut vegna Borgarlínu Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt fjórar tillögur að breytingum á deiliskipulagi vegna samræmingar við borgarlínu við Suðurlandsbraut. Tillögurnar voru samþykktar með fjórum atkvæðum gegn tveimur. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Sara er bjartasta vonin í íslenskri tónlist: „Þvílíkur heiður, ég er bara rosalega þakklát“ Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt í síðustu viku. Sara Mjöll Magnúsdóttir var útnefnd bjartasta vonin í íslenskri tónlist. Kastljós fékk að kynnast henni betur. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Flókin staða eftir kosningar í Danmörku Það gæti tekið talsverðan tíma að mynda stjórn í Danmörku, segir Hallgrímur Indriðason sem fylgdist með þingkosningunum þar á þriðjudag. Ný skýrsla um Norðurlönd og kosningarnar í Færeyjum í dag voru líka til umræðu í Heimsglugganum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Ómannað fley gerði árás á olíuskip á Svartahafi Samgönguráðuneyti Tyrklands segir ómannað fley hafa gert árás á olíuskip á siglingu um Svartahaf. Skipið hafði nýlega verið fyllt af rússneskri hráolíu. Úkraínuher hefur oft beitt slíkum tækjum við árásir á hafinu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Utanríkisráðherrar G7-ríkjanna ætla að taka á ágreiningi við Bandaríkin, stríðum og breytingum á stjórnmálakerfinu Utanríkisráðherrar G7-ríkjanna munu í dag og á morgun ræða vaxandi ágreining við Bandaríkin, stríðin í Mið-Austurlöndum og Úkraínu og leiðir að umbótum á stjórnmálakerfum heimsins. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna er væntanlegur á morgun. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Þrjár útgerðir hagnast um tæpa 20 milljarða Útgerðirnar Brim, Ísfélagið og Síldarvinnslan skiluðu tæplega 20 milljarða hagnaði árið 2025 samkvæmt ársuppgjöri. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Barcelona staðfestir komu Janusar Helga Margrét Höskuldsdóttir Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handbolta, mun ganga til liðs við stórlið Barcelona í sumar. Orðrómar um samning Janusar við félagið hafa verið háværir lengi en nú hefur félagið staðfest komu hans. Janus fer til Barcelona frá Pick Szeged í Ungverjalandi þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö tímabil. Þar áður var hann á mála hjá Magdeburg í Þýskalandi en hefur einnig spilað í Noregi og Danmörku. Janus Daði handsalar samninginn við Barcelona. FC Barcelona Hjá Barcelona hittir Janus fyrir Viktor Gísla Hallgrímsson. Liðið situr á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir og er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Samningur Janusar er til ársins 2029. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR EM karla í handbolta 2026 Sýna sjónarhorn dómaranna í stóru leikjum Íslands í janúar Evrópska handknattleikssambandið hefur birt myndskeið á miðlum sínum sem sýnir sjónarhorn dómaranna í undanúrslita- og bronsleik Íslands á EM í janúar. Myndböndin gefa áhugaverða innsýn inn í þessa stóru leiki Íslands. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Enn eykst verðbólgan Verðbólgan var 5,4 prósent í mars og jókst um 0,2 prósentustig milli mánaða. Matur og drykkur hækkaði meira í verði en spáð var. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Jafnaðarmannaflokkur lögmannsins gæti tapað fylgi Um það bil 39 þúsund Færeyingar kjósa í dag til lögþingsin. Lögmaður boðaði til kosninga vegna ósamkomulags innan stjórnarinnar um atvinnumál og lagningu neðansjávarganga. Þau mál auk málefna innflytjenda hafa litað kosningabaráttuna. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Ísland og Noregur staðfesta aðild að gervihnattakerfum Evrópusambandsins Ísland og Noregur verða hluti af tveimur áætlunum Evrópusambandsins fyrir örugg fjarskipti fyrir opinberra aðila og þá sem stjórna innviðum, samkvæmt samningi sem staðfestur var í Brussel í dag. Aðildin á að auka áfallaþol, segir innviðaráðherra. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Arkitektúr Auðvelt að vera óróttækur arkitekt: Það þarf að hafa fyrir því að stinga upp á einhverju nýju „Ég held að þetta sé oft bara meiri leti og framtaksleysi,“ segir Arnhildur Pálmadóttir arkitekt. Hún leggur mikið upp úr nýsköpun og umhverfisvænum lausnum og segir mikilvægt að vera bjartsýnn fyrir framtíðinni svo einhver framþróun verði. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Verkalýðsfélög senda Daða „uppsagnarbréf“ Þrjú stéttarfélög birtu auglýsingu í dag sem er sett upp sem uppsagnarbréf til fjármálaráðherra. Hún er hluti af baráttu þeirra gegn því að áminningarskylda opinberra starfsmanna verði afnumin. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Þrír róbótar flokka rusl af mikilli samviskusemi Róbótarnir Róbert, Sæmundur og Sebastian hófu störf hjá Íslenska gámafélaginu í haust. Að sögn forstjóra gámafélagsins slá starfsmennirnir þrír ekki slöku við þegar kemur að flokkun á sorpi. starfa frá morgni til kvölds á Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínski herinn gerir umfangsmiklar árásir í Leningrad-héraði Brynja Dögg Friðriksdóttir Pétursborg í Rússlandi. Myndin tengist fréttinni óbeint. Wikimedia Commons Úkraínski herinn gerði umfangsmiklar drónaárásir á Kirishi-olíuhreinsunarstöðina í Leningrad-héraði í nótt, samkvæmt úkraínska fréttamiðlinum Kyiv Independent. Þá voru einnig gerðar miklar drónaárásir á höfnina í Ust-Luga, sem er hafnarborg í Eystrasaltinu, og á ísbrjót sem var við bryggju í rússnesku borginni Vyborg, en báðar borgirnar eru í Eystrasaltinu. Drónaárásirnar höfðu tímabundið áhrif á flugumferð um flugvöllinn í Pétursborg, sem er í Leningrad-héraði. Höfnin í Ust-Luga er ein stærsta höfn Rússa í Eystrasaltinu og er mikilvæg höfn fyrir útflutning á hráolíu og eldsneyti. Ekki hefur verið tilkynnt um mannfall í þessum árásum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Veðrið gengur niður á suðvesturhorninu og fyrstu vegir opnast á ný Stórhríð er spáð á stórum hluta landsins og voru appelsínugular viðvaranir gefnar út á sex af ellefu spásvæðum. Spáð er suðaustanstormi og mikilli snjókomu. Verst