Frakkar unnu Íraka 3-0 í leik liðanna í I-riðli sem lauk í nótt. Kylian Mbappe skoraði fyrsta mark Frakka á 14. mínútu leiksins og hann skoraði einnig það næsta, sem kom á 54. mínútu. Ousmane Dembele skoraði þriðja markið á 66. mínútu leiksins. Frakkar voru óneitanlega sterkara lið leiksins með alls 19 markatilraunir á móti fjórum hjá Írökum. Veður setti þó mark sitt á leikinn. Sú óvenjulega staða kom upp að fresta þurfti upphafi seinni hálfleiks um tæpa tvo klukkutíma vegna eldinga á svæðinu. Áhorfendur voru hvattir til að leita skjóls vegna veðursins á meðan á eldingunum stóð. Frakkar eru með sex stig í I-riðli eftir leikinn og eru komnir í 32 liða úrslit. Næsti leikur Frakka verður á móti Norðmönnum á föstudag.