Kylian Mbappe skoraði fyrsta mark Frakka á 14. mínútu leiksins og hann skoraði einnig það næsta á 54. mínútu. Ousmane Dembele skoraði þriðja markið á 66. mínútu leiksins. Mbappe er þar með búinn að skora 16 mörk á heimsmeistaramótum og er nú tveimur mörkum á eftir Messi sem sló metið í leiknum á móti Austurríki í gær. Leikur Frakklands og Íraks hófst kl. 21 en honum lauk ekki fyrr en laust fyrir klukkan eitt eftir miðnætti. Upphafi seinni hálfleiks var frestað vegna eldingaveðurs. Seinni hálfleikur hófst að lokum kl. 23:50.