Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Ingimar Sveinsson

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.6.2026 | 6:00 Andlát: Ingimar Sveinsson Ingimar Sveinsson, bóndi, kennari og hestamaður, er látinn, 98 ára að aldri. Ljósmynd/Lárus Karl Ingason Setja bókamerki Ingimar Sveinsson, bóndi, kennari og hestamaður frá Egilsstöðum, lést 18. júní síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ, 98 ára að aldri. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars , sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Ingimar fékk gullmerki og heiðursverðlaun Landssambands hestamanna, LH. Eiginkona Ingimars var Guðrún Gunnarsdóttir, f. 1933, d. 2016. Börn þeirra eru Sigríður Fanney, f. 1957, Gunnar Snælundur, f. 1960, Kristín María, f. 1962, Ásdís, f. 1967, d. 2012, og Sveinn Óðinn, f. 1972. Barnabörnin eru tíu og langafabörnin fjögur. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hitinn gæti náð 16 stigum Kaupmáttur aukist Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Hildur Vala stofnar fyrirtæki Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slitnar upp úr viðræðum flugvirkja og Icelandair Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Væta víða um land fram undan Ófyrirsjáanleiki Trumps vandamál Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Hringvegurinn styttist við Höfn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Bæjarstjórarnir tveir léku á harmonikku Væta víða um land fram undan Skipta um skilti eftir 24 ár Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Stungu af með kranabíl Nýjast á mbl.is » Hitinn gæti náð 16 stigum Kaupmáttur aukist Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Hildur Vala stofnar fyrirtæki Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brot ferðamannanna alvarleg Sjöundi forsætisráðherrann á tíu árum Kaupmáttur aukist Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Hringvegurinn styttist við Höfn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Bæjarstjórarnir tveir léku á harmonikku Væta víða um land fram undan Skipta um skilti eftir 24 ár Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Stungu af með kranabíl

Share this article