Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.9.2026 | 7:59 Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Eyvindur Pétur Eiríksson, rithöfundur, lektor og Vestfjarðagoði Ásatrúarfélagsins, er látinn, níræður að aldri. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Eyvindur Pétur Eiríksson, rithöfundur, lektor og Vestfjarðagoði, lést á Landspítalanum 23. ágúst, 90 ára að aldri. Eyvindur var fæddur í Hnífsdal 13. desember 1935, sonur þeirra Eiríks A. Guðjónssonar og Gunnvarar Rósu Samúelsdóttur sem bæði voru fædd í Skjaldarbjarnarvík á Ströndum. Eyvindur ólst upp á Hornströndum og á Ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1955, var til sjós, vann byggingarvinnu og skrifstofustörf. Eyvindur lauk tvöföldu BA-prófi frá Háskóla Íslands árið 1964, í dönsku, ensku, uppeldis- og kennslufræði, almennum málvísindum og finnsku. Síðar nam hann íslensku og lauk cand. mag.-prófi í íslenskri málfræði, málsögu og samanburðarmálfræði árið 1977. Eyvindur kenndi á ýmsum skólastigum, á Ísafirði, í Reykjavík og Kópavogi. Hann hafði umsjón með útvarpsþættinum Daglegu máli í Ríkisútvarpinu og var fréttaritari þess í Finnlandi. Þá var hann sendilektor við Háskólann í Helsinki og Árnastofnun við Kaupmannahafnarháskóla. Eyvindur var ritfær með afbrigðum og mikill íslenskumaður, sendi frá sér fjölda skáldverka og leikrita sem sum hver voru flutt í útvarpi. Meðal verka hans eru Hvenær? , sem kom út árið 1974, Hvaðan – Þaðan (1978), Viltu (1989) og Vertu (1998) og ljóðabókin Óreiðum augum: heiðin ljóð . Vinur Eyvindar, Hilmar Örn Hilmarsson, samdi tónlist við ljóðin og bókin kom út ásamt geisladiski. Þar sem blómið vex Fyrsta útgefna skáldsaga Eyvindar, Múkkinn , kom út árið 1988 og hlaut Eyvindur Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness og var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 1997 fyrir aðra skáldsögu sína, Landið handan fjarskans . Framhaldssagan Þar sem blómið vex og vatnið fellur kom svo út árið 1999. Eyvindur var kvæntur Margréti P. Guðmundsdóttur og saman eignuðust þau fjögur börn: Eirík Guðmund, rekstrarhagfræðing og ráðgjafa (f. 1961), kvæntan Hörpu Birgisdóttur. Börn þeirra eru Sóley Freyja, leikhúsfræðingur og verkefnastjóri, og Steinar Freyr, lögfræðingur og lögmannsfulltrúi. Gunnvöru Rósu, stjórnmálafræðing og framhaldsskólakennara (f. 1967). Rósa á Særós Mist, doktorsnema á sviði fjölbreytni og jafnræðis, barnsfaðir er Hrannar B. Arnarsson, Eldey Gígju, nema við Menntaskólann við Sund, og Braga Bergþór, nema við Menntaskólann í Reykjavík. Barnsfaðir er Vésteinn Valgarðsson. Enn fremur á Eyvindur Eyjólf Berg, leikstjóra og tónlistarmann (f. 1975), og Erp Þórólf listamann (f. 1977). Eyvindur á þrjú barnabarnabörn; Ara Eyvind, Lív Eyju og Kötlu Rún. Ungur sæfari haustið 1958. Ljósmynd/Aðsend Umhyggja, heilræði og hjúkrun Eyvindur og Margrét skildu árið 2000. Sambýliskona Eyvindar frá árinu 2005 er hin norska Gro-Tove Sandsmark, fyrrverandi sendilektor Noregs á Íslandi, og bjuggu þau saman ýmist í Reykjavík eða Noregi þar til hann kvaddi þetta líf. Goðinn lét ekki smámuni standa sér fyrir þrifum í lífinu og segir Erpur sonur hans af því þegar tré féll á bifreið þeirra Gro-Tove eitt sinn í aftakaveðri á Íslandi með þeim afleiðingum að djúp dæld kom í þakið. Eyvindur settist þá í aftursæti bifreiðarinnar og rak höfuðið af afli upp í þakið svo úr réttist í upprunalegt ástand. Sambýliskona hans spurði hann þá hvort hann væri genginn af vitinu en Eyvindur svaraði því til að hún þyrfti ekki að kvíða neinu, hann væri með húfu á höfði. „Það skipti engu máli hversu margar flísarnar eða skurðirnir voru sem við börnin hans fengum og hvaða glóðaraugu maður nældi sér í, alltaf var þessi ástríka umhyggja, hjúkrun og heilræði með,“ segir Erpur sonur hans frá. Eitt sinn rotaðist Erpur við hamagang þegar skurður var grafinn við ættaróðal fjölskyldunnar í Arnardal. „Þegar maður rankaði við sér inni í húsi við hlýju huggunarorðin hans pápa þá vissi maður nákvæmlega að þessi hlýja hans kæmi manni gegnum allt lífið og áfram,“ rifjar Erpur upp að föður sínum gengnum. Leist ekki á blikuna Eyvindur var einstaklega ástsæll kennari á sinni tíð. Fyrrverandi nemendur hans stöðvuðu hann iðulega á gangi úti á götu til skrafs og að sýna hversu vænt þeim þótti um hann. Þessi hlýja einkenndi hann. Gro-Tove segir frá því þegar hún ók fyrsta sinni inn til Ísafjarðar með manni sínum. Varð henni þá ekki um sel þegar fjöldi ungra manna kom á hlaupum út af öldurhúsi þar í bænum. „Áður en ég hafði náð að leggja bílnum höfðu þeir myndað biðröð til að fá að heilsa upp á Eyvind. Þetta voru þá gamlir nemendur hans úr menntaskólanum þar í bænum,“ segist Norðmanninum frá. Ungur námsmaður og síðar kennari sem fyrrverandi nemendur flykktust að hvar sem hann fyrir hittist. Ljósmynd/Aðsend Eyvindur fór oft með börnin sín á skíði. Kalt vildi þá vera í veðri og Rósa dóttir hans minnist þess þegar henni varð kalt á höndunum eftir mikla útiveru á skíðum, hversu notalegt það var þegar pabbi hennar hlýjaði ísköldum lófum hennar í hálsakoti sínu og hversu mikið það iljaði að fá að lokum heitt kakó á brúsa. Eyvindur var mikill útivistarmaður og náttúruunnandi, kleif fjöll og átti bæði skútu og skektu, hafði unun af siglingum. Oft fór hann með norska sendilektorinn fyrrverandi, börn sín og barnabörn á skektunni út á sjó í Arnardalnum á sumrin. Þá var oft veitt í soðið og aflinn grillaður í fjörunni við komuna í land. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Stal dósum vopnaður hníf Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Brast í grát eftir langþráð læknissímtal Er líka ástfangin af 20 árum yngri manni Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg RÚV eigi ekki að „bítast um molana“ Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Mest lesið Í gær Í vikunni Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Trúbadorinn þurfti sveitina í lífið Einn fær 800 þúsund Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Sýningarrýmið bókað næstu tólf árin Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Nýjast á mbl.is » Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Stal dósum vopnaður hníf Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Brast í grát eftir langþráð læknissímtal Er líka ástfangin af 20 árum yngri manni Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Eina leiðin væri að hætta að brenna lík Allt svart í Keiluhöllinni Bilun í kerfi Teya Mest lesið Í gær Í vikunni Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Trúbadorinn þurfti sveitina í lífið Einn fær 800 þúsund Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Sýningarrýmið bókað næstu tólf árin Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi

Share this article