Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ólafur Þór nýr stjórnarformaður Olíudreifingar

Read Full Article →

Ólafur Þór Jóhannesson er orðinn nýr stjórnarformaður hjá Olíudreifingu og tekur við formennsku af Má Sigurðssyni. Ólafur hefur áður starfað sem fjármálastjóri flugfélagsins Play og sem forstjóri Skeljar fjárfestingafélags. Steingrímur Halldór Pétursson kemur nýr inn í stjórn Olíudreifingar eftir að hafa setið sem varamaður. Samhliða lætur Ólafur Gunnar Sigurðsson af stjórnarstörfum. Stjórn Olíudreifingar er nú skipuð eftirfarandi einstaklingum: Ólafur Þór Jóhannesson, stjórnarformaður • Guðný Rósa Þorvarðardóttir, meðstjórnandi • Marta Guðrún Blöndal, meðstjórnandi • Steingrímur Halldór Pétursson, meðstjórnandi • Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, varamaður • Davíð Harðarson, varamaður Breytingarnar voru staðfestar á aðalfundi félagsins 11. maí 2026. Olíudreifing sérhæfir sig í flutningi á eldsneyti, geymslu og dreifingu á landi og sjó til neytenda og söluaðila. Félagið rekur birgðastöðvar um allt land ásamt tækni- og sérfræðiþjónustu auk sölu á búnaði og tækjum tengdum eldsneytisafgreiðslu. Festi á 60% hlut í félaginu á móti 40% eignarhlut Haga. Í fyrra velti félagið 6,4 milljörðum króna og hagnaðist um 657 milljónir króna. Sjá einnig Hætta við sölu á Olíudreifingu

Share this article