Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Guðrún Karítas vann Evrópumeistarann í Kaupmannahöfn

Read Full Article →

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, sleggjukastari, heldur undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið í ágúst áfram og vann sterkt mót í Kaupmannahöfn í gær. Hún keppti á Copenhagen Athletics Games og mætti þar meðal annarra Söruh Fantini frá Ítalíu, sem er Evrópumeistari, og heimakonunni Katrine Koch Hansen, sigurvegara Evrópuleikanna í kastgreinum. Guðrún Karítas kastaði 73,12 metra í annarri tilraun sinni og það var sigurkastið. Fantini var 48 sentimetrum á eftir og Hansen 1,99 metrum á eftir. Kast Guðúnar var 76 sentimetrum frá Íslandsmeti hennar frá í vor. Evrópumótið er 10.-16. ágúst og verður sýnt á sjónvarpsrásum RÚV. Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, sleggjukastari.Marta Siljudóttir

Share this article