Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í góðri stöðu til að gera vel á EM

Read Full Article →

„Ég er frekar vel gíruð og spennt. Það er auðvitað eitthvað smá stress í manni en ég er vel undirbúin, þannig að nú er ekkert annað hægt að gera en bara keppa og njóta,“ segir Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, Íslandsmethafinn í sleggjukasti kvenna. Guðrún Karítas keppir í B-riðli forkeppni sleggjukastsins í kvöld klukkan 19:38. Sýnt verður beint frá EM í frjálsíþróttum í kvöld á RÚV 2 frá klukkan 18:00. Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir í sleggjukasti á EM í kvöld. Hún hefur kastað vel í sumar. Guðrún er spennt en finnur fyrir pressu. Spurð um markmiðin á Evrópumótinu tók Guðrún Karítas sér góða kúnstpásu og velti því vandlega fyrir sér hvernig hún ætti að svara spurningunni. „Sko, akkúrat núna þá er ég aðallega bara að hugsa um að halda mér saman og kasta vel og sjá hvað gerist. Auðvitað er ég alveg með væntingar og markmið og svona. En ég held að það sé mikilvægast að mæta í keppnina í ná að framkvæma og gera það sem ég veit að ég kann alveg að gera. Vonandi gengur það bara vel.“ Þarf að hitta á sitt besta á réttum tíma Guðrún hefur verið afar öflug í ár, á Íslandsmetið í dag, varð Íslandsmeistari í síðasta mánuði og hefur kastað stöðugt í sumar. En upplifir hún pressu að fara inn í Evrópumótið? „Aðallega frá sjálfri mér, já, því auðvitað vil ég gera vel og ég er í góðri stöðu til að gera vel. En svo þarf maður líka að hitta á þetta á réttum tíma, og ég er nefnilega alveg góð í því að setja pressu á mig og verða stressuð. En það mæta samt allir hér á sömu forsendum og gera sitt. Þannig vonandi gengur mér bara vel í samanburðinum við aðra.“ En þegar íþróttafólk hefur verið stöðugt eins og Guðrún hefur verið í sumar, hlýtur að vera gott að hugsa til þess að meira að segja lélegu köstin verði líklega góð. „Já, mér líður alveg vel með það hvar ég stend og það er mikill munur á því hvar ég er núna miðað við síðustu tvö stórmót sem ég keppti á. Þannig að vonandi get ég bara gert það sem ég hef sýnt í sumar og það ætti að leiða eitthvað gott af sér.“ Búin að sækja sér dýrmæta reynslu En hvaða máli skiptir fyrri reynsla Guðrúnu Karítas, að hafa keppt á EM í Róm fyrir tveimur árum og á HM í Tókýó í fyrra? „Hún skiptir mig miklu máli, til dæmis að vera vön þessum aðstæðum. En svo hefur þetta tímabil í ár hjá mér líka verið þannig að ég hef keppt á mörgum mótum með þessum stelpum í Evrópu í sumar. Þannig ég er búin að ná mér í góða reynslu á undanförnum árum,“ segir Guðrún Karítas, spennt fyrir keppni kvöldsins á Evrópumótinu í Birmingham. Bein útsending frá morgunhluta Evrópumótsins í frjálsíþróttum hefst á RÚV klukkan 9:30 en kvöldhlutinn verður sýndur á RÚV 2 frá klukkan 18:00.

Share this article