Innlent | mbl | 23.6.2026 | 12:11 Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Drífa segir aukningu í kyrkingum í kynlífi vera beina afleiðingu af óheftu aðgengi að klámi og því sem er í tísku í klámheiminum hverju sinni. Ljósmynd Colourbox Setja bókamerki Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir aukningu í kyrkingum í kynlífi vera beina afleiðingu af óheftu aðgengi að klámi og því sem er í tísku í klámheiminum hverju sinni. Stígamót ásamt sex öðrum samtökum sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þeim hættum sem fylgja kyrkingum í kynlífi. Frétt af mbl.is Sameinast í átaki gegn kyrkingum Klám rugi í mörkum á milli kynlífs og ofbeldis Drífa segir það vera eilífa baráttu að skilja á milli kynlífs og ofbeldis og að klám rugli stöðugt í þeim mörkum. „Við erum með kynslóðir sem vaxa upp og fá kynfræðslu aðallega í gegnum klám og halda að þetta sé hluti af því að stunda kynlíf, að meiða hvort annað og valda skaða,“ segir Drífa í samtali við mbl.is. Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir aukningu í kyrkingum í kynlífi vera beina afleiðingu af óheftu aðgengi að klámi. Ljósmynd/Aðsend Haft er eftir Drífu að þeir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafi upplifað aukningu í kyrkingartökum á undanförnum árum og að samfélagsmiðlaátakið sé til merkis um hvað samtökin, lögreglan og heilbrigðisþjónustan hafi miklar áhyggjur af þessari þróun. Ókunnugir taki líka hálstaki María Hjálmtýsdóttir, formaður Félags kynjafræðikennara, tekur undir með Drífu og segir að skýr fylgni sjáist milli aðgengis og þróunar í klámi og kyrkingarathæfis í kynlífi. „Við erum að sjá heilu vinkonuhópana sem hafa lent í því að vera teknar kyrkingartaki af jafnvel ókunnugum mönnum. Þetta er ekki alltaf eitthvað gamalt samband að reyna að búa til eitthvað „kinkí“ þegar þeim er farið að leiðast. Þetta er oft bara ókunnugt fólk,“ segir María í samtali við mbl.is. „Það eru allir að gera þetta“ Hún nefnir að dæmi séu um að börn allt niður í tíu ára komist í kynni við klám og að það eitt og sér geti verið skaðlegt og haft áhrif á hvernig börnin nálgist kynlíf í framtíðinni. „Ég hef meðal annars rætt við unglinga í skólum um þetta og þar var einhver sem sagði: „það eru allir að gera þetta“ og svo voru líka einhverjir að segja að stelpur væru að biðja um þetta,“ segir María og bætir við að þetta sé merki um að kyrkingar séu viðurkenndar sem eðlilegur hluti af kynlífi í dag. Samkvæmt samtökunum hafa nýlegar rannsóknir leitt í ljós meiri hættu á að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið. „Fólk á bara að láta hálsinn á hvort öðru alveg í friði,“ segir María. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Að sjá þetta hitastig í júní er umhugsunarefni“ Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Borað á Grundartanga Myndskeið: Stórstjörnurnar voru í stuði Vatnsmengun í bensíni til skoðunar Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Dregið verulega úr banaslysum Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur NATO prófar nýja tækni á Íslandi Kaupmáttur aukist Hringvegurinn styttist við Höfn Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Nýjast á mbl.is » „Að sjá þetta hitastig í júní er umhugsunarefni“ Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Borað á Grundartanga Myndskeið: Stórstjörnurnar voru í stuði Vatnsmengun í bensíni til skoðunar Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvirkjar: „Ekkert hægt að fullyrða um aðgerðir“ Spáir þingkosningum að vetri eftir krýningu Burnhams Slitnar upp úr viðræðum flugvirkja og Icelandair Hissa að mönnum detti þetta í hug Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur NATO prófar nýja tækni á Íslandi Kaupmáttur aukist Hringvegurinn styttist við Höfn Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur