Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Alvarlegt að kyrkingarnar séu ekki tengdar ofbeldi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.6.2026 | 21:47 Alvarlegt að kyrkingarnar séu ekki tengdar ofbeldi Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur allra birtingarmynda ofbeldis. mbl.is/Eyþór Árnason Setja bókamerki Markmiðið með samfélagsmiðlaátaki gegn kyrkingartaki í kynlífi er ekki það að dæma kynlífsathafnir fólks heldur einfaldlega að vekja athygli á þeim alvarlegu afleiðingum sem slíkar athafnir geta haft í för með sér. Þetta segir Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Sameinast í átaki gegn kyrkingum „Kyrkingar eru alltaf skaðlegar, alveg sama hversu litlum þrýstingi er beitt. Bara það átak sem samsvarar því að opna kókdós, ef þú heldur þeim þrýstingi í hálfa mínútu þá geta orðið mælanlegar afleiðingar,“ segir Jenný og bætir því við að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir áhættunni. Líklega fleiri tilfelli en skýrslur gefa til kynna Jenný segir það ekki að ástæðulausu að spurt sé um kyrkingartök í skýrslum Bjarkarhlíðar og að mun fleiri verði fyrir kyrkingartökum heldur en skýrslurnar leiði í ljós. „Þegar við spyrjum um kyrkingartak þá er það kannski í helmingi tilfella sem fólk segir já og það er yfirleitt ef kyrkingartakið er hluti af líkamlegu ofbeldi. En ef við spyrjum svo nánar, til dæmis hvort að þrengt hafi verið að öndunarvegi í kynlífi, kemur oft í ljós að fjöldinn er í raun meiri,“ segir Jenný og áréttar að þau hjá Bjarkarhlíð skrái það einungis niður ef fólk hefur orðið fyrir óumbeðnu kyrkingartaki. Frétt af mbl.is Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Jenný telur það alvarlegt mál að konur í ofbeldissamböndum tengi ekki kyrkingartökin í kynlífi við líkamlegt ofbeldi. „Gerandinn er að láta vita að hann hafi í rauninni líf þolanda í hendi sér,“ segir Jenný. Engin staðfest tölfræði til eins og er Marta Kristín Hreiðarsdóttir hjá Farsældarsviði LRH segir í svari sínu við fyrirspurn mbl.is að ekki sé til nein staðfest tölfræði hjá lögreglu um tíðni kyrkinga í ofbeldis- og kynferðisbrotum. Hún segir ástæðu þess vera að kerfi lögreglunnar hafi ekki boðið upp á slíkar skráningar en tekur jafnframt fram að því hafi nýverið verið breytt. „Það eru nokkrir mánuðir síðan við fórum að geta skráð þetta og því eru ekki komnar neinar samanburðarhæfar tölur ennþá. Við ætlum að nota sumarið í að rýna í mál og skoða þau út frá þessu,“ segir Marta. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Við ákváðum að láta drauminn rætast“ Alvarlegt að kyrkingarnar séu ekki tengdar ofbeldi Skiptu með sér stigunum í Njarðvík England – Gana, staðan er 0:0 Sjarminn sem af honum stafar er ofboðslegur Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar Væta víða um land fram undan Rauð viðvörun vegna hitabylgju í 15 borgum Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Vatnsmengun í bensíni til skoðunar Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Nýjast á mbl.is » „Við ákváðum að láta drauminn rætast“ Alvarlegt að kyrkingarnar séu ekki tengdar ofbeldi Skiptu með sér stigunum í Njarðvík England – Gana, staðan er 0:0 Sjarminn sem af honum stafar er ofboðslegur Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Væta víða um land fram undan NATO prófar nýja tækni á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Vatnsmengun í bensíni til skoðunar Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe

Share this article