Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Danakonungur þarf að endurgreiða ofgreidd framlög

Read Full Article →

Vegna reiknivillu fengu Friðrik Danakonungur og Margrét, móðir hans, hærri greiðslur úr ríkissjóði en lög gerðu ráð fyrir. Danska forsætisráðuneytið viðurkennir mistökin í bréfi til fjármálanefndar þjóðþingsins og Danska ríkisútvarpið segir frá. Mistökin tengjast breytingum sem gerðar voru á fjárveitingum til konungshallarinnar eftir að Friðrik tók við krúnunni í fyrra. Ofgreiðslan nam 300 þúsund dönskum krónum á síðasta ári, sem jafngildir sex milljónum íslenskra króna. Heildarframlög til konungsfjölskyldunnar nema um 100 milljónum danskra króna á ári. Í tilkynningunni segir að peningarnir verði endurgreiddir. Friðrik Danakonungur í Holbæk á Sjálandi fyrr í mánuðinum.EPA / Sebastian Elias Uth

Share this article