- What: Police in Iceland are calling for stricter measures against reckless driving
- Impact: Increased enforcement of traffic laws to improve road safety
Innlent | mbl | 23.6.2026 | 13:07 Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Björg segir þá sem ferðast mikið um á hálendinu hafa séð mun verri tilfelli utanvegaaksturs en þau sem vöktu athygli um helgina. Samsett mynd/mbl.is/Brynjólfur Löve/Ljósmynd/Klemenz Geir Klemenzson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Utanvegaakstur Hissa að mönnum detti þetta í hug Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Brot ferðamannanna alvarleg Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Ökumennirnir kallaðir til yfirheyrslu » Fleiri tengdar fréttir Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, varð síður en svo hissa þegar hún frétti af utanvegaakstri tveggja ferðamanna á hálendi Íslands og sá myndir af verksummerkjum þeirra. Slík lögbrot hafi fengið að viðgangast lengi, og nú sé tími til kominn að stjórnvöld bregðist við með þeim ráðum sem þarf, enda séu þau mörg til. „Enn einu sinni gerist þetta án þess að gripið sé inn í eins og þarf. Þetta var ekki einu sinni það versta sem margir fararstjórar sem ég talaði við í gær og hafa verið mikið á hálendinu árum saman, höfðu séð,“ segir Björg í samtali við mbl.is. „Við heyrum fréttir af þessu á hverju ári og samt er ennþá ekki tekið á þessu eins og því alvarlega lögbroti og hryðjuverki gegn náttúrunni, sem það er.“ Frétt af mbl.is „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Frétt af mbl.is Hissa að mönnum detti þetta í hug Vill sjá „kraftmikla náttúruvernd“ í verki Björg segir þessa linkind einkennilega í ljósi þess að tekið sé á umferðarlagabrotum af öllu öðru tagi með háum sektum og jafnvel skerðingu ökuréttinda. „Það virðist vera litið á þetta sem ekki neitt alvarlegt, og ég sakna þess að stjórnvöld grípi inn í þetta á kraftmikinn hátt. Nú væri gott að sjá tekið á þessu,“ segir hún og minnir á að umhverfisráðherra hafi fyrir skömmu lofað „kraftmikilli náttúruvernd“. Erfitt sé að koma jarðveginum í samt horf eftir utanvegaakstur þótt töluverður hluti af tími landvarða fari í þá iðju, og það geti tekið marga áratugi fyrir landið að jafna sig. „Af hálfu stjórnvalda og lögreglu þá er þetta auðvitað virðingarleysi við náttúruna og vettlingatök á brotum sem vitað er að hafa verið framin“ Frétt af mbl.is Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Fjöldamargt í stöðunni Hún segir fjöldamargar aðgerðir koma til greina sem einfalt væri að grípa til. „Fyrir það fyrsta mætti nýta þann ramma sem lögin núna leyfa til þess að leggja á sektir sem bíta, alla vega meira en hefur verið gert,“ segir hún og bætir því við að þær sektarheimildir sem fyrir liggi hafi gjarnan ekki verið nýttar og að það hafi einfaldlega ekki tíðkast að stoppa þessi ökutæki af. „Þetta eru bílar sem eru sérstaklega útbúnir til þess að keyra utan vega sem komið er með til landsins, og hvað halda menn að standi þá til í Íslandsferðinni annað en að keyra utan vega?“ Frétt af mbl.is Skemmdir eftir utanvegaakstur Frétt af mbl.is „Þetta er ótrúlegur verknaður“ „ You can drive fast, but I can drive everywhere“ Þá segir hún það ekki endilega alltaf þannig að fólkið sem stundi þetta sé ekki nógu vel upplýst um að það sé ólöglegt, en í tilfelli ferðamannanna sem gómaðir voru um helgina höfðu þeir til að mynda verið margvaraðir við því að utanvegaakstur væri bannaður með lögum. „Það þarf þjóðarsátt um að auglýsa ekki Ísland sem einhverja utanvegaparadís, samanber það sem stóð á skiltum hjá þessum mönnum: You can drive fast, but I can drive everywhere, “ segir hún. „Fólk kemur hingað til þess eins að aka utan vegar, og af hverju gerir það það? Vegna þess að það hlýtur að telja að það komist upp með það, eða jafnvel að það megi.“ Frétt af mbl.is Telur tjónið hlaupa á tugum milljóna Frétt af mbl.is Á mótorhjólum utanvega við Nesjavallaleiða Ef náið er að gáð má lesa orðin úr áletruninni undir glugga bílsins. Ljósmynd/Klemenz Geir Klemenzson Leggur til hálendisnámskeið Ofan á það að löggæsluaðilar myndu hreyfa sig meira innan þeirra laga sem nú eru segir Björg að hægt væri að setja strangari lög um utanvegaakstur hérlendis. „Strangari lög, hærri sektarviðmið, og það væri hægt að gera kröfu til ferðamanna á hálendinu um að þeir hefðu einfaldlega þá hæfni og vitneskju sem til þarf til þess að geta ekið á hálendinu,“ segir hún. „Það væri hægt að gefa út skírteini, halda bara námskeið þannig að þeir færu ekkert upp á hálendið ef þeir gætu síðan bara sagt sorrí, ég vissi þetta ekki, þegar þeir eru teknir fastir í einhverjum sandi,“ rétt eins og ferðamennirnir hafi gert þegar þeir festust í holu undir Kötlurótum. „Það á ekki að vera í boði.“ Frétt af mbl.is Brot ferðamannanna alvarleg Ferðamennirnir festu annan jeppa sinna í holu við utanvegaaksturinn. Ljósmynd/Margrét Herborg Nikulásardóttir Ekki heppilegt að breyta landvörðum í lögreglu Björg leggur jafnframt til að lögreglan hafi einhverja viðveru uppi á hálendinu og sé virkari í því að bregðast við ábendingum, enda séu landverðir í lítilli stöðu til þess að sinna löggæsluhlutverki gagnvart ökudólgum. „Landverðir hafa ekki önnur úrræði en að vera með vinsamlegar ábendingar og fræðslu, sem þeir gera svo sannarlega þar sem þeir eru, en þeir eru bara á friðuðum svæðum og þar af leiðandi er mjög stór hluti hálendisins alveg utan þeirra lögsögu,“ segir hún. Þegar lögreglan hafi fengið ábendingu um athæfi frönsku ferðamannanna tveggja hafi hún til að mynda ekki farið inn á svæðið að hafa uppi á mönnunum, heldur hafi hálendissamfélagið allt þurft að taka þátt í því að koma málinu í farveg. „Henni voru eiginlega færðir þessir menn á silfurfati,“ segir Björg. Hún kveðst þó ekki telja að það væri til góðs að auka heimildir landvarða til löggæslu utan sinnar lögsögu. „Ég er ekki viss um að það að breyta landvörðum í lögreglu væri heppilegt, þeir eru kannski bara bestir í því hlutverki sem þeir eru að sinna núna,“ segir hún. „En lögreglan þyrfti sennilega sjálf meiri viðbúnað og að hafa kraft og styrk til þess að bregðast við þegar hún fær ábendingar.“ Frétt af mbl.is Segir þetta hafa snarminnkað á seinustu 20 árum Tengdar fréttir Utanvegaakstur Hissa að mönnum detti þetta í hug Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Brot ferðamannanna alvarleg Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Ökumennirnir kallaðir til yfirheyrslu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Trump: Fjármunir Írans fari inn á vörslureikning Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Margir sem sigrast á lofthræðslu Tottenham fylgist með Rashford Tómas að fá nýjan stjóra? Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaupmáttur aukist „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Flugvirkjar: „Ekkert hægt að fullyrða um aðgerðir“ Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Segir heimildir Heimildarinnar rýrar Vatnsmengun í bensíni til skoðunar NATO prófar nýja tækni á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Nýjast á mbl.is » Trump: Fjármunir Írans fari inn á vörslureikning Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Margir sem sigrast á lofthræðslu Tottenham fylgist með Rashford Tómas að fá nýjan stjóra? Umræðan Geimöldin í ísskápnum „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óraunsannar upplýsingar frá lögreglu Norðmenn fylgjast grannt með íslenskri umræðu Sjöundi forsætisráðherrann á tíu árum Væta víða um land fram undan Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Segir heimildir Heimildarinnar rýrar Vatnsmengun í bensíni til skoðunar NATO prófar nýja tækni á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Skipta um skilti eftir 24 ár Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur „Þetta eru bara menn sem er skítsama“