- What: China's LineShine supercomputer has become the world's most powerful
- Impact: It uses only CPUs instead of GPUs, marking a shift in supercomputing design
Kínverjar hafa nú í fyrsta sinn síðan 2017 tekið fyrsta sæti með öflugustu ofurtölvu í heimi. Ofurtölvan, sem ber heitið LineShine, er staðsett í Shenzhen og prýðir nú toppsætið á hinum Top500-lista yfir öflugustu tölvukerfi heims. Á vef New York Times segir að LineShine sé 20% öflugra en El Capital í Kaliforníu, sem hafði áður haldið toppsætinu síðan í nóvember 2024. Það sem vekur sérstaka athygli er að kerfið notast einungis við hefðbundna miðlæga örgjörva (CPU), frekar en sérhæfðar GPU-grafíkvinnslueiningar sem flestar öflugar ofurtölvur í heiminum reiða sig á. Sjá einnig Opnar á útflutning Nvidia-örgjörva til Kína gegn 25% þóknun Örgjörvarnir eru hannaðir með leyfi frá breska tæknifélaginu Arm Holdings, sem er undir stjórn japönsku fjárfestasamsteypunnar SoftBank. Jack Dongarra, prófessor í tölvunarfræði við háskólann í Tennessee og einn af aðstandendum Top500-listans, segir að takmarkanir bandarískra stjórnvalda á útflutningi GPU-eininga til Kína hafi hvatt Kínverja til að finna nýjar leiðir til að þróa ofurtölvur. „Þetta varð hvatning fyrir Kínverja til að þróa kerfi sem er á sama stigi og öflugustu tölvukerfi Bandaríkjanna.“