Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kín­versk gervi­greindar­líkön sækja í sig veðrið

  • What: Chinese AI company Moonshot plans to launch large language model
  • Impact: Advances in AI development by Chinese firms
Read Full Article →

Kínverska gervigreindarfyrirtækið Moonshot hyggst á næstu dögum kynna Kimi K3, stórt mállíkan sem gæti fært kínverska gervigreind nær fremstu bandarísku gervigreinarfyrirtækjum á borð við Anthropic. Samkvæmt heimildarmönnum Financial Times verður K3 stærsta kínverska gervigreindarlíkanið til þessa og mun nota 2 til 3 billjónir breyta (e. parameters) í líkani sínu. Meiri fjöldi skilar alla jafnan meiri getu. Anthropic hefur ekki gefið upp stærð sinna líkana en sérfræðingar telja að Opus 4.8 notist við um 1,5 til 2 billjónir breyta. Talið er líklegt að K3 líkanið muni ná betri árangri en Opus 4.8 á helstu viðmiðarprófum. Þó er talið ólíklegt að það nái getu Fable, öflugs líkans frá Anthropic sem var tímabundið tekið úr umferð eftir að bandarísk stjórnvöld lýstu áhyggjum af mögulegri notkun þess við tölvuárásir. K3 gæti grafið undan þeirri alhæfingu að kínversk gervigreindarlíkön séu átta til tólf mánuðum á eftir bandarískum keppinautum. Líkanið gæti einnig aukið þrýsting á bandarísk fyrirtæki á borð við Anthropic og OpenAI, sem halda sínum öflugustu líkönum lokuðum og rukka hátt verð fyrir aðgang. Bandarísku líkönin eru enn talin sterkari í flóknustu verkefnunum, en fjárfestar og stjórnendur í tækniiðnaðinum vara við því að forskot þeirra sé að minnka. Marc Andreessen sagði nýlega að GLM-5.2 frá kínverska fyrirtækinu Z.ai væri fyrsta kínverska líkanið sem jafnaðist á við opinber líkön stærstu bandarísku gervigreindarfyrirtækjanna. Á sama tíma eru fyrirtæki í Bandaríkjunum og Evrópu farin að nota ódýrari kínversk líkön til að minnka kostnað. Bandarísk fyrirtæki hafa sakað kínversk rannsóknarteymi um að nýta svokallaða þekkingareimingu til að líkja eftir háþróuðum líkönum, en sum kínversk fyrirtæki hafna því og segja slíkar ásakanir séu tilraunir til að verja einokunarstöðu Bandaríkjanna.

Share this article