Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kólumbíumenn komnir áfram eftir sigur á Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó

Read Full Article →

Kólumbíumenn eru komnir á toppinn í K-riðli á heimsmeistaramótinu í fótbolta eftir 1-0 sigur gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Lionel Mpasi fór mikinn í marki Kongómanna og varði hvert skotið á fætur öðru frá liði Kólumbíu. Á endanum náði Daniel Muñoz að koma þeim gulklæddu yfir á 76. mínútu leiksins. Hann skoraði líka í síðasta leik liðsins gegn Úsbekum. Með sigrinum tryggði Kólumbía sér sæti í útsláttarkeppni mótsins. Liðið getur tryggt sér toppsætið í riðlinum með sigri eða jafntefli þegar það mætir liði Portúgals á laugardag. Kongómenn eiga enn möguleika á að komast áfram en til þess að svo megi verða verða þeir að ná sér í þrjú stig gegn Úsbekum á laugardag. Tveir leikir hefjast klukkan 19 í kvöld. Í öðrum þeirra taka heimamenn í Kanada á móti Svisslendingum. Sú viðureign verður í beinni útsendingu á RÚV. Í hinum leiknum mæta Bosníumenn Katörum. Leikurinn verður sýndur á RÚV 2.

Share this article