Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kongómenn áfram í 32-liða úrslit

Read Full Article →

Landslið Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó er komið áfram í 32-liða úrslit eftir sigur liðsins 3-1 á Úsbekistan í nótt. Fyrsta mark leiksins kom á 10. mínútu þegar Eldor Shomurodov skoraði fyrsta og eina mark Úsbeka í leiknum. Það var þó nokkur bið eftir markaregni Kongómanna. Yoane Wissa skoraði fyrir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó á 68. mínútu, Fiston Mayele kom með annað mark þeirra um tíu mínútum síðar og Wissa skoraði svo sitt annað mark, á 91. mínútu. Wissa var jafnframt valinn maður leiksins. Lið Kongó var óneitanlega sterkara liðið og reyndi að skora mark 19 sinnum á móti þremur skiptum Úsbeka. Kongó er með 4 stig og Úsbekistan 0 stig þegar þessum síðasta leik í K-riðli er lokið. Kongómenn mæta Englendingum í 32-liða úrslitum á miðvikudaginn í Atlanta í Bandaríkjunum.

Share this article