Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Skeytið frá Rubio

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.6.2026 | 9:00 Skeytið frá Rubio Gunnar Pálsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, sendi íslensku þjóðinni kærkomnar árnaðaróskir í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní sl. Birtist kveðja ráðherrans í beinu framhaldi af þeim umræðum hér á landi sem fram hafa farið um samskipti Íslands og Bandaríkjanna í ljósi væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að ESB. Í yfirlýsingu ráðherrans segir m.a.: „Árið sem er að líða markar 75 ára afmæli tvíhliða varnarsamnings okkar. Þetta samstarfsverkefni hefur í þrjá aldarfjórðunga viðhaldið stöðugleika á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Um sama leyti og Bandaríkin fagna 250 árum sjálfstæðis síns erum við áfram skuldbundin þessu sameiginlega öyggisbandalagi.“ Ánægjulegt er, á afmælisári varnarsamningsins, að bandarísk stjórnvöld árétti að þau muni áfram leggja rækt við samstarf Bandaríkjanna og Íslands um öryggis- og varnarmál. Jafnframt er ástæða til að gefa fullan gaum að því yfirvegaða orðalagi sem ráðherrann notar í yfirlýsingu sinni. Þar tengir hann afmæli varnarsamningsins og sjálfstæðisafmæli Bandaríkjanna og gefur þannig vísbendingu um að hann líti svo á að örlög Íslands á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum séu samslungin örlögum Bandaríkjanna. Hann kallar síðan tvíhliða varnarsamning ríkjanna samstarfsverkefni (e. partnership) og undirstrikar þannig að samningurinn byggist á gagnkvæmum hagsmunum beggja aðila. Þessi sama áhersla á það sem ríkin eiga sameiginlegt er síðan endurtekin, því í næstu setningu lýsir ráðherrann samstarfinu sem „sameiginlegu öryggisbandalagi“ (e. shared security alliance). Í umræðunum um mögulega aðild Íslands að ESB hefur ekkert komið fram sem bent gæti til þess að íslensk stjórnvöld hafi haft frumkvæði að samráði við Bandaríkin um hugsanleg áhrif aðildar að sambandinu og varnarsamstarfi þess á tvíhliða varnarsamstarfið. Eftir því sem næst verður komist hafa bandarísk stjórnvöld ekki kosið að tjá sig um það efni að fyrra bragði, enda óvanalegt að náin bandalagsríki hlutist beinlínis til um utanríkismál hvert annars. Þrátt fyrir þessa varfærni er ekki laust við að lesa megi óbeina viðvörun út úr hinni vinsamlegu hátíðarkveðju, en í skilaboðum sínum á þjóðhátíðardaginn hefur utanríkisráðherra Bandaríkjanna kosið að minna á að í varnarsamstarfinu eiga Ísland og Bandaríkin gagnkvæmra hagsmuna að gæta – hagsmuna sem ekki verður betur séð en að íslensk stjórnvöld hafi komið sér hjá að ræða á þann hátt sem óbrigðulum bandamanni hæfir. Gunnar Pálsson, fyrrverandi sendiherra Íslands hjá NATO. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Atvinnuleysi 5,6% í maí Myndir: Veiddu 7 metra beinhákarl Samhjálp hafði nánast lokið framkvæmdum Verður 45 ára Ronaldo með á næsta HM? Evrópa að verða „meiri háttar ógn“ við frið Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kannast ekki við að beita bolabrögðum Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Andlát: Hjörtur Guðnason Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Kannast ekki við að beita bolabrögðum Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Hola í höggi í fjórða skipti Rýmri heimildir fyrir rafsendibíla Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Atvinnuleysi 5,6% í maí Myndir: Veiddu 7 metra beinhákarl Samhjálp hafði nánast lokið framkvæmdum Verður 45 ára Ronaldo með á næsta HM? Evrópa að verða „meiri háttar ógn“ við frið Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Dregið verulega úr banaslysum Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Andlát: Hjörtur Guðnason Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Kannast ekki við að beita bolabrögðum Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Hola í höggi í fjórða skipti Rýmri heimildir fyrir rafsendibíla Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn

Share this article