Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sendi Íslendingum kveðju í tilefni þjóðhátíðardagsins í síðustu viku. Í yfirlýsingu sem birt var á Facebook lagði hann sérstaka áherslu á vaxandi efnahagslegt samstarf milli ríkjanna, sem væri lykilstoð í sambandi Íslands og Bandaríkjanna. Þá nefndi hann sérstaklega íslenska nýsköpun á sviði orku, gagnavera, líftækni, sjávarútvegs auk sprotafyrirtækja sem drifkraft aukinna viðskipta. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir yfirlýsinguna merkilega fyrir ýmsar sakir. „Þetta eru skýr skilaboð um að bandarískir ráðamenn hafi tekið vel eftir þeirri verðmætasköpun og nýsköpun sem á sér stað í íslenskum iðnaði. Það er mikilvægt að svo stór og mikilvægur samstarfsaðili sjái mikil tækifæri í auknum viðskiptum, fjárfestingum og samstarfi við Ísland og íslensk fyrirtæki. Við höfum séð tækifærin líka, þau eru á báða bóga,“ segir Sigurður. Þar spili hugverkaiðnaður stórt hlutverk en þau svið sem Rubio nefnir tengjast þeim iðnaði að stórum hluta. Hugverkaiðnaður varð í fyrra þriðja stærsta útflutningsstoðin hér á landi og tók þar með fram úr sjávarútvegi. Í lok þessa áratugar gæti hún orðið sú verðmætasta að sögn Sigurðar, en það sé háð stefnumörkun stjórnvalda og markaðsaðstæðum. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. © Morgunblaðið/Eggert (Morgunblaðið/Eggert) „Bandaríkjamarkaður er lykilmarkaður fyrir hugverkaiðnað, margar vörur sem eru afrakstur hugverkaiðnaðar verða til hér og eru fluttar út. Til dæmis eru tæki og vörur til lækninga núna stærsti einstaki vöruflokkurinn í útflutningi til Bandaríkjanna og skila meiri útflutningsverðmætum en þorskur,“ segir Sigurður. Þá hafi útflutningur annarra vöruflokka, til að mynda lyfja, farið vaxandi. Sigurður bendir á að greiður aðgangur að mörkuðum muni skipta Ísland höfuðmáli í framtíðinni, þar sem lífskjör byggjast fyrst og fremst á því að framleiða verðmæti sem standast alþjóðlega samkeppni og eru seld á erlenda markaði. „Þess vegna skiptir greiður aðgangur að mörkuðum, ekki síst Bandaríkjamarkaði, miklu máli fyrir framtíðarvöxt íslensks iðnaðar. Þetta er mikilvæg áminning um þau tækifæri sem eru til staðar og eins að íslenskur iðnaður er mjög mikilvægur þegar kemur að auknum viðskiptum milli ríkjanna, nýsköpun og hagvexti“ segir Sigurður, en hann telur að um gagnkvæman ávinning sé að ræða. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .