Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Atvinnuleysi 5,6% í maí

Read Full Article →

Atvinnuleysi á Íslandi mældist 5,6% í maí 2026 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands . Um 13.100 einstaklingar á aldrinum 16 til 74 ára voru án atvinnu og litlar breytingar urðu á vinnumarkaði frá fyrri mánuði. Í maí 2025 stóð atvinnuleysi í 3,2% Hlutfall starfandi var 76,5% og atvinnuþátttaka 81,1%. Á heildina litið urðu nánast engar breytingar á niðurstöðunum milli mánaða, þó hlutfall starfandi og atvinnuþátttaka hækkaði lítillega. Óleiðréttar tölur sýna hins vegar meira atvinnuleysi. Samkvæmt þeim mældist atvinnuleysi 8,3% í maí og voru um 19.800 einstaklingar án vinnu. Hlutfall starfandi var 74,8% eða tæplega 219.300 manns, en atvinnuþátttaka 81,6% eða um 239.100 einstaklingar. Samanborið við maí 2025 jókst atvinnuleysi um 3,8%, á meðan hlutfall starfandi lækkaði um 3,8% og atvinnuþátttaka minnkaði um 0,7%. Atvinnuleysi var mest meðal ungs fólks. Hjá einstaklingum á aldrinum 16 til 24 ára mældist það 23,8% í maí, samanborið við 5,1% meðal þeirra sem voru 25 ára og eldri.

Share this article