Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi mældist 5% í júní samkvæmt nýrri vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Það jafngildir um 11.500 atvinnulausum einstaklingum á aldrinum 16 til 74 ára og er 0,6 prósentustiga lækkun frá maí. Á sama tíma mældist árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 74,4% og atvinnuþátttaka 78,4%. Bæði hlutföll lækkuðu milli mánaða, en hlutfall starfandi dróst saman um 1,9 prósentustig og atvinnuþátttaka um 2,4 prósentustig. Óleiðréttar niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknarinnar sýna að atvinnuleysi var 3,9% í júní, sem samsvarar um 9.200 einstaklingum. Alls voru tæplega 228.700 starfandi, eða 77,9% landsmanna á vinnualdri, en atvinnuþátttaka mældist 81%, sem jafngildir um 237.900 einstaklingum á vinnumarkaði. Heimild: Hagstofa Íslands Þrátt fyrir lækkun atvinnuleysis frá fyrri mánuði hefur staðan versnað frá sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi jókst um 1,7 prósentustig frá júní 2025 samkvæmt óleiðréttum tölum, á meðan hlutfall starfandi lækkaði um 5,4 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 4,1 prósentustig.