Tuttugu og fjórir sóttu um embætti bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. Á lista yfir umsækjendur eru margir reynsluboltar úr sveitarstjórastólum, fyrrverandi alþingismenn og körfuboltadómari, svo nokkrir séu nefndir. Víkurfréttir birtu lista yfir umsækjendur. Á listanum eru meðal annars Pétur G. Markan, fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis, Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri Húnavatnshrepps og Skaftárhrepps, Alexandra Jóhannesdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri Skagastrandar, og Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri Reykhólahrepps. Meðal umsækjenda eru einnig Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður, Gísli Rafn Ólafsson, fyrrverandi alþingismaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Rauða krossins, og Kristinn Óskarsson, körfuboltadómari og fyrrverandi mannauðsstjóri Reykjanesbæjar. Hér er listi yfir umsækjendur í heild: Agnar Júlíusson – Forstöðumaður Alexandra Jóhannesdóttir – Fv. sveitar- og hafnarstjóri Arna Hrönn Aradóttir – Verkefnastjóri og ráðgjafi Aron Heiðar Steinsson – Deildarstjóri Ásgeir Sveinsson – Verkefnastjóri Ásmundur Friðriksson – Fv. alþingismaður Birgir Albertsson Sanders – Blikksmiður Einar Kristján Jónsson – Fv. sveitarstjóri Gauti Magnússon – Viðskiptastjóri Gísli Kr. Björnsson – Lögmaður Gísli Rafn Ólafsson – Fv. framkvæmdastjóri Hannes Lúðvíksson – Ritari Hilmar Vilberg Gylfason – Lögfræðingur Jóhann Friðrik Friðriksson – Ráðgjafi Jón Ingi Hákonarson – Ráðgjafi Kristinn Óskarsson – Stjórnendaþjálfari og ráðgjafi Maríanna Hugrún Helgadóttir – Fv. framkvæmdastjóri Ólafur Þór Ólafsson – Fv. sveitarstjóri Pétur G. Markan – Fv. bæjarstjóri Sigurður Jóhannesson – Sérfræðingur Snorri Leo Gabríelsson – Þjónn Súsanna Björg Fróðadóttir – Lögmaður Syed Anisuddin – Öryggisvörður Þorsteinn Þorsteinsson – Ritstjóri