Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Setja 630 milljónir í markaðs­setningu á Ís­landi

Read Full Article →

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu, undirrituðu í dag samning til eins árs um markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. Samkvæmt samningnum leggja stjórnvöld til 630 milljónir króna í verkefnið, samkvæmt tilkynningu atvinnuvegaráðuneytisins. Kynna niðurstöður heildarendurskoðunar í vetur Í nýrri aðgerðaáætlun atvinnustefnu Íslands kemur fram að innan atvinnuvegaráðuneytisins verði unnið að heildarendurskoðun á skipulagi, hlutverkaskiptingu og samningum um opinbera markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Markmiðið er að skýra ábyrgð, auka samhæfingu og bæta nýtingu fjármuna. „Niðurstaða þeirrar vinnu verður kynnt næsta vetur sem fyrsti liður þess að gera langtímaáætlun fyrir viðvarandi neytendamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað.“ Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ferðaþjónustuna hafa lengið kallað eftir því að farið sé í viðvarandi markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað í stað þess að vera í tímabundnum markaðsátökum. Þessi samningur sé fyrsta skrefið í þeirri vegferð. „Þetta styður auðvitað við þá öflugu markaðssetningu sem ferðaþjónustufyrirtækin sjálf standa fyrir. Markmiðið með viðvarandi markaðssetningu er ekki síst að draga úr árstíðasveiflum í íslenskri ferðaþjónustu og stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið.“ Pétur: Samkeppnin sjaldan verið meiri Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, segir samkeppni um ferðamenn hafa sjaldan verið meiri en í dag. „Við viljum hafa áhrif á þróun greinarinnar, sækja fram gagnvart réttum markhópum á okkar verðmætustu mörkuðum og vinna gegn árstíðasveiflu. Þannig náum við að hámarka þann ávinning sem íslenskt samfélag í heild hefur af þessari mikilvægu atvinnugrein.“

Share this article