Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sameinast um að vernda heiti Íslands

Read Full Article →

Nýtt samkomulag hefur verið undirritað af utanríkisráðuneytinu, menningarráðuneytinu, Samtökum atvinnulífsins, Hugverkastofu, Icelandic Trademark Holding og Íslandsstofu með það markmið að vernda landaheitið Ísland/Iceland á erlendum mörkuðum. Í tilkynningu segir að samkomulagið sé gert til að tryggja að heitið sé ekki misnotað við markaðssetningu vara og þjónustu. Íslandsstofa mun hafa umsjón með vöktun landaheitisins ásamt því að annast verkefnastjórn á samstarfinu. Samhliða því verður starfrækt fagráð með fulltrúum samstarfsaðila sem mun móta verklag og veita faglegan stuðning. Sjá einnig Sigur ís­lensks at­vinnulífs í ICELAND málinu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að Íslendingar standi vörð um landaheitið og tryggi að það sé ekki misnotað. „Ég fagna því að aðilar sameinist nú um að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Ég er fullviss um að samstarf atvinnulífs og stjórnvalda muni efla enn frekar vernd og vöktun landaheitisins Ísland og þar með hagsmuni íslensks atvinnulífs.“ Samkomulagið byggir meðal annars á þeirri reynslu sem íslensk stjórnvöld hafa aflað í langvarandi vörumerkjadeilu við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods. Niðurstaðan í því máli varð Íslandi í hag og undirstrikaði mikilvægi þess að verja landaheitið á erlendum mörkuðum. „Við höfum staðið í töluverðri baráttu um rétt íslenskra fyrirtækja til að kenna sig við landið en slík upprunatenging er nú á tímum sérlega mikilvæg. Okkar saga hefur verið öðrum þjóðum innblástur og því hefur Ísland verið leiðandi í umræðu um aukna vernd fyrir landaheiti innan alþjóðlega vörumerkjakerfisins.“

Share this article