Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Icelandair hækkar um 5%

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Icelandair hækkaði um 5,3% í 20 milljóna króna veltu og stóð í 0,80 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar. Gengið hækkaði úr 0,76 krónum í 0,80 krónur á síðasta klukkutímanum fyrir lokun hlutabréfamarkaðarins. Gera má ráð fyrir að hækkunin skýrist af lækkun olíuverðs en eins og Viðskiptablaðið fjallaði um hefur heimsmarkaðsverð Brent hráolíu lækkað um 4,7% í dag og stendur nú í 73,5 dölum á tunnu. Verðið hefur ekki verið lægra frá því að stríðið í Íran hófst í lok febrúar. Sjá einnig Olíu­verð aðeins 1,5% hærra en fyrir stríðið í Íran Gengi Amaroq lækkaði mest af félögum aðalmarkaðarins eða um 2,1% í tæplega 60 milljóna króna veltu. Hlutabréfaverð málmleitarfélagsins stendur nú í 138 krónum á hlut og er nú 25% lægra en í byrjun árs. Sjá einnig Gullverð fór undir 4.000 dali í fyrsta sinn í sjö mánuði Heimsmarkaðsverð gulls fór í dag í fyrsta sinn undir 4.000 dali á únsu frá því í nóvember síðastliðnum. Gullverð hefur lækkað um meira en fjórðung í ár.

Share this article