Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls

Read Full Article →

Innlent | mbl | 24.6.2026 | 17:05 Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Fjölmiðlanefnd telur ekki ástæðu til að aðhafast í máli Páls Steingrímssonar sem kvartaði við nefndina yfir frétt RÚV í apríl. mbl.is/samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Byrlunarmálið Segir dóminn um RÚV mótsagnarkenndan Ósannað að síminn hafi verið afritaður Þóra og RÚV sýknuð Fyrirtaka í byrlunarmáli Páls í dag Sýknudómur Landsréttar stendur » Fleiri tengdar fréttir Fjölmiðlanefnd telur að lágmarkskröfur um andsvör séu uppfylltar í máli sem snýst um meint brot Ríkisútvarpsins á fjölmiðlalögum í umfjöllun þess um Pál Steingrímsson, fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, og telur nefndin ekki ástæðu til að aðhafast frekar varðandi þann þátt málsins er snýr að frétt RÚV 19. apríl og ósamræmi milli hennar og fréttar danska miðilsins Berlingske. Fjallaði fréttin um að Páll og nafni hans Vilhjálmsson bloggari hefðu varað fréttamann RÚV við því að fjalla um íslenskan sjávarútveg. Í birtri frétt Berlingske sagði að haft væri eftir umræddum blaðamanni að Páll hefði ítrekað sent honum og öðrum blaðamönnum óbeinar hótanir. Hins vegar hafi RÚV ekki brugðist við athugasemdum Páls innan þeirra þriggja sólarhringa tímamarka sem fjölmiðlalög tilgreina. Birti RÚV leiðréttingu og afsökunarbeiðni fyrst átta dögum síðar. Ókunnugt um breytingar Í úrskurði nefndarinnar, sem hún hefur nú sent frá sér, segir svo: Að sögn RÚV var þeim ókunnugt um að breytingar hefðu orðið á drögunum áður en fréttin birtist hjá Berlingske. Það hafi ekki verið fyrr en eftir að kvartandi benti RÚV á að um ósamræmi væri að ræða á milli fréttar RÚV og Berlingske að starfsfólk RÚV áttaði sig á því. Í kjölfarið var fréttin uppfærð með leiðréttingu ásamt afsökunarbeiðni þann 27. apríl 2026. Áðurnefnt ósamræmi laut að því að í upphaflegri frétt sem birtist á vef RÚV kom fram að í frétt Berlingske væri haft eftir tilteknum blaðamanni að kvartandi hefði hótað honum og öðrum blaðamönnum minnst þrisvar sinnum í tengslum við umfjöllun hans um Samherjamálið. Tók nefndin fram að frétt RÚV hefði verið leiðrétt og afsökunar beðist nokkru áður en Páll kvartaði til hennar vegna málsins 5. maí. Sjónarmið á framfæri Um það atriði hvort RÚV hefði átt að veita Páli kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við vinnslu fréttarinnar eins og fjölmiðlalög mæla fyrir um segir nefndin að til þess sé að líta að sjónarmið Páls komi skýrt fram í frétt Berlingske auk þess sem þau séu rakin skilmerkilega í frétt RÚV sem hafi verið endursögn á frétt danska miðilsins. Í ljósi þess sé það mat nefndarinnar að RÚV hafi ekki brotið gegn 1. mgr. 26. gr. laga um fjölmiðla að þessu leyti og því sé ekki ástæða til að aðhafast frekar í málinu á þeim grundvelli. Téð málsgrein laganna er svohljóðandi: Fjölmiðlaveita skal í starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og standa vörð um tjáningarfrelsi. [Hún skal virða mannréttindi og jafnrétti, og einnig friðhelgi einkalífs nema lýðræðishlutverk fjölmiðlaveitu og upplýsingaréttur almennings krefjist annars.] Fjölmiðlaveita skal gæta þess að uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni [í fréttum og fréttatengdu efni] og gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt karla sem kvenna. Tengdar fréttir Byrlunarmálið Segir dóminn um RÚV mótsagnarkenndan Ósannað að síminn hafi verið afritaður Þóra og RÚV sýknuð Fyrirtaka í byrlunarmáli Páls í dag Sýknudómur Landsréttar stendur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nær samkomulagi við Leeds Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Mamdani-menn unnu stórsigur Mikill léttir fyrir Englendinga Fá ekki leyfi fyrir leiðigarði án umhverfismats Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fá ekki að opna kaffistofu á Grensásvegi Áreitni og einelti enn útbreitt Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Samningurinn „yfirlýsing Bandaríkjanna um ósigur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Hola í höggi í fjórða skipti Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Nýjast á mbl.is » Nær samkomulagi við Leeds Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Mamdani-menn unnu stórsigur Mikill léttir fyrir Englendinga Fá ekki leyfi fyrir leiðigarði án umhverfismats Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samningurinn „yfirlýsing Bandaríkjanna um ósigur“ Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Hlaut 4 mánaða fangelsi fyrir banaslys á Sæbraut „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Hola í höggi í fjórða skipti Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins

Share this article