Innlent | mbl | 8.7.2026 | 15:45 Umfjöllun RÚV braut ekki siðareglur Siðanefnd blaðamannafélagsins telur RÚV ekki hafa brotið siðareglur. mbl.is/Samsett mynd Setja bókamerki Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands telur að Ríkisútvarpið hafi ekki brotið gegn siðareglum blaðamanna í umfjöllun þess um Pál Steingrímsson, fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja. Umfjöllunin sneri að því að Páll og nafni hans Vilhjálmsson bloggari hefðu varað fréttamann RÚV við því að fjalla um íslenskan sjávarútveg. Í birtri frétt Berlingske sagði að haft væri eftir Helga Seljan blaðamanni að Páll hefði ítrekað sent honum og öðrum blaðamönnum óbeinar hótanir. Páll kærði Iðunni Andrésdóttur fréttakonu, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóra og Ríkisútvarpið til siðanefndar blaðamannafélagsins. Frétt af mbl.is Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Felur í sér alvarlega ásökun Í kærunni hélt Páll því fram að í upphaflegri útgáfu fréttarinnar hefði verið fullyrt að hann hefði hótað Helga Seljan og öðrum blaðamönnum þrisvar sinnum. Það sagði hann rangt og að slík fullyrðing fæli í sér alvarlega ásökun sem gæti haft veruleg áhrif á mannorð hans og gefið lesendum til kynna að hann hefði gerst sekur um refsiverða, eða í það minnsta mjög ámælisverða, háttsemi. Þá taldi Páll að sér hefði ekki verið gefinn kostur á andsvörum áður en fréttin var birt og að RÚV hefði ekki svarað ósk hans um leiðréttingu, sem hann sendi um klukkustund eftir birtingu, fyrr en átta dögum síðar. Páll segir að í hinni kærðu umfjöllun hafi verið tiltekið að rannsókn lögreglu á meintri refsiverðri háttsemi blaðamanna hafi verið „felld niður“, sem sé rangt. Hið rétta sé að rannsókn hafi verið hætt og að á þessu sé skýr lögfræðilegur munur. Loks hefði þurft að gæta sérstakrar varúðar við vinnslu fréttarinnar þar sem heimildarmenn hennar hefðu verið tveir nafngreindir blaðamenn sem báðir störfuðu hjá RÚV. Aðeins um endursögn að ræða Í andsvörum RÚV kom fram að fréttin hefði verið endursögn á drögum að frétt sem til stóð að birta í danska dagblaðinu Berlingske. Í drögunum var haft eftir Helga Seljan að Páll hefði hótað honum og öðrum blaðamönnum minnst þrisvar sinnum, en í endanlegri útgáfu Berlingske var orðalaginu breytt á þá leið að talað var um óbeinar hótanir. RÚV hafi verið grunlaust um þessa breytingu, enda hafi hvergi komið fram í upphaflegu erindi Páls að frétt RÚV væri í ósamræmi við frétt Berlingske. Þegar Páll benti síðar á ósamræmið hafi fréttin verið leiðrétt eftir nánari eftirgrennslan og afsökunarbeiðni birt. Sérhver ónákvæmni ekki brot Í niðurstöðu sinni segir siðanefnd mikilvægt að gera greinarmun á fullyrðingum blaðamanns eða fjölmiðils í fréttaumfjöllun annars vegar og endursögn á því sem haft er eftir nafngreindum heimildarmanni í öðrum miðli hins vegar. Í hinni kærðu umfjöllun hafi ekkert verið fullyrt um hvort Páll hefði haft í hótunum, beinum eða óbeinum, við nafngreinda blaðamenn. Það eina sem fullyrt hafi verið sé að Berlingske hafi haft það orðrétt eftir viðmælanda sínum að hann segði Pál hafa hótað sér. Nefndin bendir jafnframt á að í erindi Páls til RÚV, sem sent var um klukkustund eftir birtingu fréttarinnar, hafi í engu verið getið um misræmi milli fréttar RÚV og fréttar Berlingske. RÚV hafi lagfært fréttina um leið og ljóst var hvernig í pottinn var búið. „Siðanefnd telur rétt að árétta að ekki leiðir sérhver ónákvæmni í fréttaumfjöllun til þess að brotið sé gegn siðareglum blaðamanna. Við mat á því þarf að líta til eðlis og vægis þeirrar ónákvæmni sem um ræðir, samhengis umfjöllunarinnar, þess hvort lesendum hafi verið gert nægilega skýrt hvaðan upplýsingar eru fengnar og hvernig fjölmiðill bregst við ef tilefni er til leiðréttingar,“ segir í úrskurði nefndarinnar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hafa ákveðið að loka kaffihúsinu Heilbrigðisráðuneytið gerir samning við HÍ Umfjöllun RÚV braut ekki siðareglur Mannréttindaráðið fagnaði 20 ára afmæli með sumarlotu Björgvin Franz og Bryndís ástfangin á Ítalíu Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íran gerði árásir á bandarískar herstöðvar Leita enn að flutningavélinni Hitinn um og yfir 20 stig á Austurlandi Hótar að hætta öllum viðskiptum við Spán Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Austurlandið klárt í hitabylgju Skapar óviðunandi hættuástand Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Málið rannsakað sem hatursglæpur Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Nálgunarbanns krafist Nýjast á mbl.is » Hafa ákveðið að loka kaffihúsinu Heilbrigðisráðuneytið gerir samning við HÍ Umfjöllun RÚV braut ekki siðareglur Mannréttindaráðið fagnaði 20 ára afmæli með sumarlotu Björgvin Franz og Bryndís ástfangin á Ítalíu Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Biskup kennir í brjósti um skemmdarvargana Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Austurlandið klárt í hitabylgju Skapar óviðunandi hættuástand Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Málið rannsakað sem hatursglæpur Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Nálgunarbanns krafist