- What: A report on the increasing use of larger fish in Icelandic aquaculture and the importance of timing in their transport.
- Impact: Relevant to the aquaculture industry and related technologies.
Eftir því sem notkun stórra gönguseiða eykst í íslensku laxeldi verður rétt tímasetning flutnings í sjó sífellt mikilvægari. Elise Hjelle, sérfræðingur í smoltun hjá Pharmaq Analytiq, sem hefur hafið samstarf við Sýni ehf., varar við því að röng tímasetning geti aukið afföll og haft neikvæð áhrif á langtímaárangur í eldi. Smolt Vision auðveldar framleiðendum að staðfesta sjóþroska seiða áður en þau eru flutt í sjó. Meðal þeirra fyrirtækja sem nýta sér aðferðina er Laxey í Vestmannaeyjum. Smoltun kallast það ferli sem seiðin ganga í gegnum til að verða sjógönguhæf. Nýlega hófu Pharmaq Analytiq og Sýni samstarf um uppbyggingu háþróaðrar greiningarþjónustu fyrir fiskeldi á Íslandi. SmoltVision er nú í boði fyrir íslenska framleiðendur og auðveldar þeim að leggja mat á sjóþroska seiða og draga þannig úr áhættu við flutning í sjó og bæta árangur í eldi. Sýni er íslenskt þjónustufyrirtæki sem starfrækir prófunarstofur á tveimur starfsstöðvum, í Kópavogi og á Akureyri þar sem gerðar eru örveru- og efnaprófanir á matvælum, vatni og umhverfissýnum. Framleiðsla stórra gönguseiða, það er seiða sem eru 250 grömm eða stærri, hefur aukist hratt í laxeldi. Í Noregi fjölgaði þeim úr 10,5 milljónum árið 2018 í 101,9 milljónir árið 2024, eða í um 23,5% af heildarframleiðslu gönguseiða. Stærri gönguseiði geta stytt eldistíma í sjó fram að slátrun, en þeim fylgja jafnframt nýjar rekstrarlegar og líffræðilegar áskoranir. „Í framleiðslu stórseiða er þroski fiska innan sama hóps oft ekki að fullu samræmdur. Ekki eru allir fiskar tilbúnir fyrir sjó á sama tíma,“ segir Hjelle. „Ef fiskur er fluttur áður en smoltun er nægilega langt komin eykst hætta á afföllum og lakari árangri. Stærri gönguseiði geta einnig brugðist með ófyrirsjáanlegri hætti við hefðbundnum þáttum, svo sem birtu og hitastigi.“ Nokkrir framleiðendur fjárfesta nú í sjóaðlöguðum seiðum. Ólíkt stórum gönguseiðum eru það fiskar sem þegar hafa aðlagast söltu vatni og ljúka fyrsta vaxtarskeiði sínu í sjóeldisstöðvum. Stór gönguseiði eru hins vegar alin á landi þar til þau ná meiri þyngd en þurfa engu að síður að vera lífeðlisfræðilega tilbúin þegar flutningur á sér stað.