Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Karlar og eldra fólk hlynntara hvalveiðum

Read Full Article →

Þriðjungur þjóðarinnar er hlynntur veiðum á langreyðum en 41% eru þeim andvíg. Rúmur fjórðungur, 26%, er hvorki hlynntur né andvígur. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Maskína gerði fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. Þegar rýnt er í niðurstöðurnar má sjá að konur eru mun andvígari veiðunum en karlar, eða 51% til samanburðar við 32% karla. Þá er eldra fólk líklegra til að vera hlynnt veiðunum en yngra. Hlutfall hlynntra fer hækkandi samhliða því sem svarendur eru eldri. Þannig eru aðeins 21% svarenda á aldrinum 18 til 29 ára hlynnt langreyðaveiðum, en 45% svarenda 60 ára og eldri. Þetta er í sjötta sinn sem Maskína kannar viðhorf til langreyðaveiða fyrir Náttúruverndarsamtökin frá 2022. Könnunin var gerð 29. apríl til 6. maí og 1.018 svöruðu könnuninni. Nánari niðurstöður

Share this article