Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar sagt upp

  • What: Reykjavík City Communications Office is being dissolved, and all staff are being laid off.
  • Impact: Residents and businesses relying on city communications.
Read Full Article →

Skrifstofa samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg hefur verið lögð niður og öllum upplýsingafulltrúum verið sagt upp. Samkvæmt heimildum fréttastofu var þetta samþykkt á fundi borgarráðs í dag, sem stendur enn yfir, og flestum starfsmönnum skrifstofunnar hefur þegar verið sagt upp. Ekki var óskað eftir því að þeir ynnu uppsagnarfrest. Aðrir verða færðir til í starfi. Heimildin greindi fyrst frá. Á skrifstofu samskipta og viðburða störfuðu alls 14 manns, samkvæmt vef Reykjavíkurborgar: samskiptastjóri, sex upplýsingafulltrúar, þrír verkefnastjórar viðburða, verkefnastjóri miðlunar, ljósmyndari og tveir myndbandsgerðarmenn. Samkvæmt heimildum fréttastofu var tíu manns sagt upp Fréttin verður uppfærð.

Share this article