- What: Reykjavík City Communications Office is being dissolved, and 10 staff are being laid off.
- Impact: Residents and businesses relying on city communications.
Tíu manns hefur verið sagt upp á skrifstofu samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg, að því er Vísir greinir frá. Þar af hefur öllum sjö upplýsingafulltrúum borgarinnar sem störfuðu á sviðinu verið sagt upp. Auk þess var starfsfólki á sviðinu sem hefur sinnt ljósmyndun og myndbandagerð sagt upp. Skrifstofa samskipta og viðburða hjá borginni verður lögð niður. Hluti starfsmanna þess verður fluttur til í starfi en öðrum hefur verið sagt upp. Starfsfólk á sviðinu fékk bréf í morgun um fyrirhugaðar breytingar og var í kjölfarið kallað á fund borgarritara Þorsteins Gunnarssonar. Breytingin fylgir í kjölfar þess að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins tók við eftir sveitarstjórnarkosningar í maí. Fyrr í þessum mánuði var skipaður hagræðingarhópur sem hefur það hlutverk að gera stjórnsýslu borgarinnar, bæði miðlæga og á fag- og kjarnasviðum, skilvirkari, gagnsærri og þjónustumiðaðri, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Sjá einnig Ari og Pétur í hagræðingarhópi Hildar