Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Madibo í fimm leikja banni

Read Full Article →

Búið er að dæma Assim Madibo, leikmann Katar, í fimm leikja bann fyrir tæklingu sína á Ismaël Koné í kanadíska liðinu. Liðin mættust í riðlakeppninni í síðustu viku. Þótt tæklingin sjálf hafi ekki endilega litið mjög illa út þá eru afleiðingarnar umtalsverðar. Madibo fékk beint raut spjald fyrir. Koné er með brot í sköflungi og hjá ökkla. Madibo þótti atvikið mjög miður og bað Koné afsökunar við leikslok. Katar hefur lokið leik á HM og því tekur Madibo bannið út eftir mótið. Katar laut í lægra haldi fyrir Bosníu og Hersegóvínu í gær, 3-1. Heldur í trúna Þótt Kanada hafi unnið stórsigur í leiknum, 6-0, varpaði brotið sannarlega skugga á gleðina. Koné hefur undirgengist aðgerð og á bataferli fram undan. Hann hefur þó góða trú. „ALLAH hefur aldrei brugðist mér. Ekki einu sinni. Svo hvers vegna að efast um hann núna? Sérstaklega þegar maður veit það. Hann veit og sér allt áður en það gerist jafnvel.“ Kanada er komið í 32-liða úrslit og Koné verður að líkindum mættur í stúkuna að styðja liðsfélaga sína. Þungt bann en ekki það þyngsta Bann Madibo telur fimm leiki en það eru fleiri leikmenn sem hlotið hafa þyngri dóma á HM. Luis Suárez fékk til að mynda níu leikja bann fyrir að bíta varnarmann Ítalíu, Giorgio Chiellini, á HM 2014 í Brasilíu. Þá fékk ítalski Mauro Tassotti átta leikja bann fyrir olnbogaskot sitt í spænska Luis Enrique á HM 1994.

Share this article