Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.6.2026 | 16:00 | Uppfært 16:16 Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara var lagt niður í dag auk skrifstofu samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að breytingarnar hafi áhrif á 27 stöðugildi af 42 á áðurnefndum skrifstofum. Níu störf hafa verið færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar. Átján störf verða lögð niður en gert er ráð fyrir að ráðið verði í einhver störf á ný eftir að innleiðingu stjórnkerfisbreytinga borgarinnar fram vindur auk þess sem verkefnum verður útvistað. Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Skerpa á ráðningarbanni og viðveruskyldu Í tilkynningunni segir að tillögurnar séu liður í markmiðum stýrihóps meirihlutans í borginni um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Áætlað er að þessar breytingar geti lækkað rekstrarkostnað borgarinnar um 280 til 330 milljónir króna á ársgrundvelli þegar innleiðingu skipulagsbreytinganna er lokið. Haft er eftir Hildi Björnsdóttur borgarstjóra að þessar ákvarðanir hafi ekki verið teknar af léttúð en hún tekur fram að rekstur borgarinnar standi að óbreyttu ekki undir lögbundinni þjónustu. Samhliða ofangreindum breytingum verður skerpt á ráðningarbanni og viðveruskyldu innan miðlægrar stjórnsýslu, auk þess sem dregið verður úr ferðalögum borgarstarfsmanna og innleitt nýtt verklag þar sem ferðaheimildir skulu vera samþykktar af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. „Gert er ráð fyrir að ofangreindar breytingar taki gildi frá og með 1. júlí nk. Á næstu vikum og mánuðum munu frekari tillögur er snúa að öðrum þáttum í rekstri borgarinnar verða kynntar af hagræðingarhópi borgarstjóra sem er að störfum.“ Byggja upp minna fagteymi Eins og áður segir hefur stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verið lagt niður. Helstu verkefnum á borð við rannsóknarþjónustu, verkefnastýringu lýðheilsumála og Græna planið verður hætt frá og með næstu mánaðamótum. Atvinnuþróun mun færast til umhverfis- og skipulagssviðs og ytri nýsköpun til þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Verkefni á borð við samhæfingu stefnumótunar, persónuvernd og alþjóðamál verða áfram á skrifstofunni en með breyttum áherslum. Skrifstofa samskipta og viðburða var lögð niður. Viðburðateymi borgarinnar mun færast til menningar- og íþróttasviðs auk þess sem stefnt er að því að byggja upp minna fagteymi miðlunar. „Mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð verða lögð niður og lögbundin verkefni áfram tryggð og færð nær þeim sviðum sem sinna viðkomandi þjónustu. Borgarráð mun fara með jafnréttismál sveitarfélagsins. Verkefni sem tengjast innflytjendum, fólki af erlendum uppruna, ofbeldisvörnum og Bjarkarhlíð verða færð til velferðarsviðs. Verkefni sem snúa að hinsegin fræðslu og stuðningi við hinsegin börn og ungmenni verða færð til skóla- og frístundasviðs. Jafnframt verður stofnað öldunga- og aðgengisráð Reykjavíkurborgar sem sinnir lögbundnu samráðs- og ráðgjafarhlutverki gagnvart eldra fólki og fötluðu fólki.“ Fréttin hefur verið uppfærð 1 blogg um fréttina Bloggað um fréttina Geir Ágústsson: Tiltekt Nýjast á mbl.is » Páfinn sendir milljónir til Venesúela Aldrei heitara í Sviss í júní: Hitamet fallið Önnur stór skipti í NBA-deildinni Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Draumur forsetans: „Elsku Albert ég er löngu hætt að baka“ Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Dæmdur fyrir fjárdrátt: Hélt eftir lífeyrisgreiðslum „Ógeðslega skemmtilegur dagur“ Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Lúmskt algengir sjúkdómar Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Páfinn sendir milljónir til Venesúela Aldrei heitara í Sviss í júní: Hitamet fallið Önnur stór skipti í NBA-deildinni Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Draumur forsetans: „Elsku Albert ég er löngu hætt að baka“ Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hlaut 4 mánaða fangelsi fyrir banaslys á Sæbraut Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Botnfrosnar væntingar um efnahag Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Lúmskt algengir sjúkdómar Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article