Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

300 milljónir gætu sparast með skipu­lags­breytingunum

Read Full Article →

Borgarráð samþykkti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Tillögurnar eru liður í markmiðum stýrihóps meirihlutans um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, taka breytingarnar til skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, en undir skrifstofuna heyra jafnframt skrifstofa samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofa. Breytingarnar hafa áhrif á 27 stöðugildi af 42 á áðurnefndum skrifstofum. Níu störf verða færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar. Átján störf verða lögð niður en gert er ráð fyrir að ráðið verði í einhver ný störf eftir því sem innleiðingunni vindur fram auk þess sem verkefnum verður útvistað. Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst 40%. Um hópuppsögn er að ræða og hefur Vinnumálastofnun verið upplýst. Áætlað er að þessar breytingar geti lækkað rekstrarkostnað borgarinnar um 280 til 330 milljónir króna á ársgrundvelli þegar innleiðingu skipulagsbreytinganna er að fullu lokið. „Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar. Það er eðlilegt að ég horfi fyrst til þeirra verkefna sem standa mér næst í þeim efnum, hér á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Þessar ákvarðanir eru hvorki einfaldar né teknar af léttúð. Rekstur borgarinnar stendur hins vegar að óbreyttu ekki undir lögbundinni þjónustu, nauðsynlegum fjárfestingum og mikilvægu viðhaldi innviða. Þess vegna reynast þessar aðgerðir nauðsynlegar. Nýr meirihluti mun halda áfram að velta við öllum steinum til að ná fram markmiðum okkar um hagræðingu og bætta þjónustu við íbúa, “ er haft eftir Hildi Björnsdóttur, borgarstjóra. Samhliða þessum breytingum verður skerpt á ráðningarbanni og viðveruskyldu innan miðlægrar stjórnsýslu, auk þess sem dregið verður úr ferðalögum borgarstarfsmanna og innleitt nýtt verklag þar sem ferðaheimildir skulu samþykktar af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Gert er ráð fyrir að ofangreindar breytingar taki gildi frá og með 1. júlí nk. Á næstu vikum og mánuðum munu frekari tillögur er snúa að öðrum þáttum í rekstri borgarinnar verða kynntar af hagræðingarhópi borgarstjóra sem er að störfum.

Share this article