Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.6.2026 | 16:39 | Uppfært 16:58 „Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum Pétur Marteinsson er annar borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar. mbl.is/Ólafur Árdal Setja bókamerki Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá á fundi borgarráðs í dag við afgreiðslu umfangsmikilla breytinga innan Reykjavíkurborgar er sneru að því að leggja tvær skrifstofur borgarinnar og átján störf innan þeirra niður. Í bókunum frá fundi dagsins lýsa fulltrúar minnihluta borgarstjórnar yfir áhyggjum af fjölda starfa sem lögð verða niður og framtíð þeirra verkefna sem undir skrifstofurnar og starfsfólkið heyrðu. Þeir gagnrýna jafnframt skamman fyrirvara sem gafst til þess að kynna sér gögnin fyrir fundinn. „Það er ávallt sársaukafullt að sjá á eftir hæfu starfsfólki, en mestar áhyggjur höfum við af þeirri hugmyndafræðilegu stefnubreytingu sem þessi uppstokkun ber vitni,“ segir í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar. Ekki hefur náðst í neinn borgarfulltrúa Reykjavíkur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Frétt af mbl.is Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Frétt af mbl.is Tilkynnt um uppsagnirnar fyrir fram Hætt við að dragi úr pólitískum þunga Á borgarráðsfundi þar sem ákvörðunin var tekin lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram svohljóðandi bókun: „Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa skilning á því að nýr meirihluti vilji móta stjórnkerfið í takt við sínar áherslur. Hins vegar er það mikið áhyggjuefni hvaða málaflokkar verða fyrir niðurskurðarhnífnum í þessum sömu breytingum. Á tímum þar sem mannréttindi, jafnrétti, loftslagsmál og málefni innflytjenda eiga undir högg að sækja víðs vegar um heiminn og hér á landi, velur nýr meirihluti að leggja niður mannréttindaráð, mannréttindaskrifstofu, verkefnastýringu lýðheilsumála og stýringu Græna plansins. Þetta eru málaflokkar sem hafa verið í forgrunni hjá Reykjavíkurborg á síðustu árum. Stjórnkerfi og fagráð endurspegla gildismat og skyldur sveitarfélagsins. Með því að leggja niður sérhæfðar fagskrifstofur og færa jafnréttismál beint undir borgarráð er hætt við að dregið verði úr pólitískum þunga og faglegri rýni á þessum lífsnauðsynlegu verkefnum. Það er ávallt sársaukafullt að sjá á eftir hæfu starfsfólki, en mestar áhyggjur höfum við af þeirri hugmyndafræðilegu stefnubreytingu sem þessi uppstokkun ber vitni.“ Frétt af mbl.is Mannréttindaskrifstofa einnig lögð niður Fengu djúpa, faglega og vel ígrundaða skoðun Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins lögðu þá fram svohljóðandi gagnbókun: „Breytingarnar fengu djúpa, faglega og vel ígrundaða skoðun. Þær taka mið af nýrri nálgun og stefnu meirihlutans þar sem áherslan er sett á þjónustu sem skapar virði fyrir íbúa, að fara vel með skattfé, einfalda stjórnskipulag og hagræða í rekstri.“ Liður í því sé að færa verkefni fyrrum mannréttindaskrifstofu nær þeim sem í reynd sinna þeim verkefnum innan borgarkerfisins og fá meiri slagkraft sem sé til þess fallinn að ná raunverulegum árangri í þessum málaflokkum. Frétt af mbl.is Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Pétur Marteinsson er annar borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, og Sanna Magdalena Mörtudóttir er áheyrnarfulltrúi Vinstrisins í ráðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Kostnaður við útvistun ekki fyrirséður Sanna Magdalena Mörtudóttir, áheyrnarfulltrúi Vinstrisins í borgarráði, gagnrýnir hvað fulltrúar minnihlutans fengu skamman tíma til að kynna sér tillöguna. „Það sem vekur athygli er fjöldi starfa sem eru lögð niður og áhersla á útvistun verkefna en ekki er fyrirséð hver kostnaðurinn við slíkt verður sem og áhrif á samfellu verkefna. „Þá á að breyta hlutverki nýstofnaðs öldungaráðs þar sem það verður öldunga- og notendaráð fatlaðs fólks. Þá er ekki skýrt hvernig utanumhaldi um Græna planið sem er heildarstefna Reykjavíkurborgar verði háttað,“ segir í bókun hennar. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg þar sem greint er frá breytingunum segir að Græna planið sé eitt þeirra verkefna stefnumótunar- og þróunarteymis borgarinnar sem lögð verði niður. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Markvörður United fer aftur á lán „Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum „Til hvers að vera með áætlun?“ Ráða í sex til sjö ný störf Kína virkjar stærstu fiskeldisstöð á hafi Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hlaut 4 mánaða fangelsi fyrir banaslys á Sæbraut Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Setja á fót sérstakt teymi til að góma vasaþjófa Myndir: Jarðskjálftinn í Venesúela Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Lúmskt algengir sjúkdómar Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Markvörður United fer aftur á lán „Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum „Til hvers að vera með áætlun?“ Ráða í sex til sjö ný störf Kína virkjar stærstu fiskeldisstöð á hafi Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lífshætta getur skapast á augnabliki Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Ríkið sagt svíkja samkomulag Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Lúmskt algengir sjúkdómar Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article